Lindex lokar í þrjá daga

Sænska móðurskipið Lindex hefur verið í átta ár í Smáralind en nú mun verslunin loka í þrjá daga vegna endurbóta.   

Hið nýja útlit verslunarinnar verður eftir svokallaðri „clean concept“ hönnun en hönnunin byggir á björtu yfirbragði þar sem hvítur er áberandi litur í bland við svart og viðartóna sem gefa versluninni skandinavískt yfirbragð. Uppsetning verslunarinnar mun einnig breytast töluvert og ýmsar nýjungar vera kynntar.

„Við erum ótrúlega spennt fyrir þessum breytingum, nýja útlitið er bjart og stílhreint og við eigum auðveldara með að gera okkar fallegu vörum enn betri skil auk þess sem verslunin verður mun aðgengilegri fyrir okkar frábæru viðskiptavini. Við hlökkum til að heyra hvað þeim finnst um þessar breytingar,“ segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi.

Hugmyndafræði „clean concept“ nær einnig til umhverfis- og sjálfbærnistefnu Lindex og endurspeglast í stöðugt auknu framboði vara framleiddum með sjálfbærum hætti. Fyrirtækið hefur einsett sér að 80% af framleiðslunni verði framleidd með sjálfbærum hætti fyrir árið 2020 og 100% af bómull Lindex verði framleidd með lífrænum/sjálfbærum hætti fyrir þann tíma. En þess ber að geta að langstærstur hluti af barnalínu Lindex er framleiddur úr lífrænni bómull og/eða endurunnum efnum. Lindex býður einnig viðskiptavinum sínum að endurnýta fatnað með því að skila notuðum fatnaði til verslunarinnar gegn inneign.

Lindex í Smáralind opnar aftur á fimmtudaginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál