Stal Wintour stílnum frá Heiðrúnu Önnu?

Nöfnurnar Heiðrún Anna og Anna Wintour eru með svipaðan smekk.
Nöfnurnar Heiðrún Anna og Anna Wintour eru með svipaðan smekk. Samsett mynd

Tónlistarkonan Heiðrún Anna Björnsdóttir stal senunni í bláum leðurkjól í Söngvakeppninni um helgina. Heiðrún Anna er greinilega með puttana á púlsinum í tískuheiminum en blátt leður virðist vera afar vinsælt þessa dagana. Engin önnur en tískudrottningin Anna Wintour sást í bláu leðri daginn eftir að Heiðrún Anna sló í gegn í Háskólabíói. 

Heiðrún Anna söng lag sitt í undankeppni Söngvakeppninnar í bláum …
Heiðrún Anna söng lag sitt í undankeppni Söngvakeppninnar í bláum leðurkjól. skjáskot/Ruv.is

Anna Wintour var í síðri blárri leðurkápu þegar hún var viðstödd tískusýningu Victoriu Beckham í London á sunnudaginn.

Bláa leður- eða pleðurtískan sást líka á tískupallinum hjá Victoriu Beckham. Mátti sjá skó og veski í bláa litnum þegar frú Beckham sýndi haust- og vetrartískuna fyrir árið 2019. 

Blátt á tískupallinum hjá Victoriu Beckham.
Blátt á tískupallinum hjá Victoriu Beckham. mbl.is/AFP
View this post on Instagram

Touches of retro, pinches of the ‘70s. #VBAW19 #LFW

A post shared by Victoria Beckham (@victoriabeckham) on Feb 17, 2019 at 4:09am PST



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál