Hermdi eftir kjól Kim á stórkostlegan hátt

Mömmubloggarinn Laura birti þessa samsettu mynd af sér og Kim …
Mömmubloggarinn Laura birti þessa samsettu mynd af sér og Kim Kardashian á Instagram. skjáskot/Instagram

Bandaríski mömmubloggarinn Laura er dugleg að sýna raunsanna mynd af hinni venjulegu húsmóður á bloggi sínu Knee Deep in Life. Hún vakti mikla athygli á dögunum þegar hún reyndi að herma eftir sérkennilegum kjól sem Kim Kardashian klæddist nýverið. 

Kim Kardashian mætti í yfir 20 ára gömlum kjól frá Thierry Mugler á verðlaunaafhendingu í Hollywood. Það virtist þó einna helst vanta framhliðina á kjól Kardashian og Laura tók því bol og klippti til að herma eftir kjól Kardashian. Auðvitað héldust geirvörturnar ekki pikkfastar á bak við efnislítinn kjól Lauru eins og í tilviki Kim Kardashian. 

Laura reyndi líka að pakka sér inn í slaufu fyrir Valentínusardaginn með hlægilegum árangri. Hún leit að sjálfsögðu ekki út eins og fyrirmyndin sem er fyrirsæta pökkuð inn í lítinn borða. 

Mömmubloggarinn Laura fær mjög góð viðbrögð við uppátækjum sínum enda bráðfyndin. Bak við grínið er þó ádeila enda eru auglýsingar með fyrirsætum og stórstjörnum ansi oft fjarri lífinu sem hin venjulega húsmóðir lifir. 




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál