Tvennar aðhaldsbrækur björguðu

Sarah Hyland var í tveimur settum af aðhaldsbrókum í eftirpartýi …
Sarah Hyland var í tveimur settum af aðhaldsbrókum í eftirpartýi Óskarsins. mbl.is/AFP

Fólk er rétt að klára bolludaginn þegar árshátíðavertíðin skellur á. Það er þó engin ástæða til að fara í einhverja hundleiðinlega megrun ef marka má Modern Family-leikkonuna Söruh Hyland. 

Hyland mætti í stærsta partý Hollywood eftir Óskarsverðlaunin í fallegum bleikum kjól frá Zac Posen. Það sem sást ekki jafn vel var klæðnaðurinn sem Hyland sem var í undir kjólnum. Hyland var nefnilega ekki bara í einum aðhaldsnærbuxum heldur tvennum eins og hún sagði sjálf frá á Instagram. 

„Sturluð staðreynd ég er í tvennum aðhaldsnærbuxum. Af hverju að fara í megrun? Þegar þú getur bara falið það!“ skrifaði Hyland. 

Kannski er málið ekki endilega að fá sér bara nýjan kjól fyrir árshátíðina, kannski eru nýjar aðhaldsbrækur bara málið? Eða tvennar eins og í tilviki Hyland. 

View this post on Instagram

#funfact I’m wearing TWO pairs of spanx. Why diet? When you can just hide it!

A post shared by Sarah Hyland (@sarahhyland) on Feb 26, 2019 at 6:02am PST

Sarah Hyland í aðhaldsbrókum undir kjólnum sínum.
Sarah Hyland í aðhaldsbrókum undir kjólnum sínum. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál