Hvor var flottari Meghan eða Katrín?

Meghan og Katrín voru prúðbúnar með hatta.
Meghan og Katrín voru prúðbúnar með hatta. Samsett mynd

Hertogaynjurnar Katrín og Meghan settu upp hatta á mánudag þegar þær mættu til messu í Westminister Abbey og fögnuðu Samveldinu ásamt Elísabetu drottningu og öðru fínu fólki í Bretlandi. 

Meghan lét lítið fyrir sér fara í hvítu á meðan svilkona hennar Katrín fór ekki fram hjá neinum í eldrauðu. Katrín lét sér nægja að mæta í gömlum kjól og kápu frá Catherine Walker en Meghan sem er kasólétt klæddist nýjum kjól frá Victoriu Beckham. 

Í svona samkomum er hattatískan ekki síður spennandi en kjólarnir. Meghan var með fallegan klassískan hatt í anda Jackie Kennedy. Forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, gaf hertogaynjunum þó ekkert eftir í stíl og hattavali. Tók May sem er þekkt fyrir áhuga á tísku kannski meiri áhættu en hinar stilltu Meghan og Katrín. 

Theresa May var með flottasta hattinn.
Theresa May var með flottasta hattinn. mbl.is/AFP
Elísabet Bretadrottning.
Elísabet Bretadrottning. mbl.is/AFP
Camilla mætti með manni sínum í fjólubláu með hatt með …
Camilla mætti með manni sínum í fjólubláu með hatt með fjöðrum. mbl.is/AFP
Meghan og Harry.
Meghan og Harry. mbl.is/AFP
Hertogahjónin af Cambridge, Katrín og Vilhjálmur.
Hertogahjónin af Cambridge, Katrín og Vilhjálmur. mbl.is/AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál