Hvenær eru spennur orðnar of margar?

Lupita Nyong'O á frumsýningu US í Austin, Texas.
Lupita Nyong'O á frumsýningu US í Austin, Texas. mbl.is/AFP

Óskarsverðlaunaleikkonan Lupita Nyong'O fær vinningin þegar kemur að frumlegustu hárgreiðslu og förðun á rauða dreglinum í ár. Erfitt er að ímýnda sér að einhver toppi hana í ár þótt enn sé nóg til stefnu. Einhver gæti spurt sig að því hvort ekki hefði mátt sleppa nokkrum spennum. 

Förðunarfræðingur Nyong'O sagðist í viðtali við Allure hafa sótt innblástur til tónlistarmyndbanda á níunda áratugnum. Ekki er hægt að segja annað en að Nyong'O hafi borið augnskuggann sem málaður var þvert yfir andlit hennar afskaplega vel. 

Hárgreiðsla leikkonunnar vakti ekki síður athygli en hún var með hárið greitt aftur og stórar og fyrirferðarmiklar spennur huldu að hluta til hár hennar. Spennur sem þessar eru notaðar til þess að halda hárinu þegar verið er að greiða það. Nyong'O er þó ekki sú fyrsta til þess að bera slíkar spennur til skrauts en hárgreiðslumaður hennar benti á það á Instagram að hann hefði fengið innblástur frá engum öðrum en rapparanum Snoop Doog. 

View this post on Instagram

@snoopdogg was our inspiration for tonights look 🤪💥♥️ #redcarpet for #usmovie @sxsw #lupitanyongo ✊🏾🖤

A post shared by Vernon François (@vernonfrancois) on Mar 8, 2019 at 5:39pm PST

Lupita Nyong'O.
Lupita Nyong'O. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál