Fetaði óvart í fótspor Sigmundar Davíðs

Þingkonan Mary Gay Scanlon segist hafa farið óvart í ósamstæða …
Þingkonan Mary Gay Scanlon segist hafa farið óvart í ósamstæða skó og ekki fattað það. Samsett mynd

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er ekki eini stjórnmálamaðurinn sem hefur tekið upp á því að klæðast ósamstæðum skóm. Þingkona í Bandaríkjunum tók upp á þessu á dögunum þótt ástæðan hafi verið önnur en í tilviki fyrrverandi forsætisráðherra. 

Þingkonan Mary Gay Scanlon greindi sjálf frá því á Twitter að hún hefði farið óvart í ósamstæða skó. Hún segist ekki hafa fattað það fyrr en klukkan fjögur, eftir að hafa unnið heilan vinnudag í ósamstæðum skóm, að hún væri ekki í samstæðum skóm. Henni til varnaðar eru skórnir nánast eins bara öðruvísi á litinn og segir hún þetta merki um hraðann í þinginu í Washington. 

Sigmundur Davíð gerði auðvitað allt vitlaust þegar hann mætti í Nike-skó og spariskó þegar hann hitti Barack Obama í Svíþjóð fyrir nokkrum árum. Sigmundur Davíð vissi þó nákvæmlega hvað hann var að gera þegar hann klæddi sig bara í einn Nike-skó eins og hann fór yfir í viðtali á Smartlandi.  

Hér sjást skór Sigmundar vel.
Hér sjást skór Sigmundar vel.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál