Veganvænir hárlitir sem endurlífga hárið

Lilja Ósk Sigurðardóttir er hrifin af öllu sem er vegan og þess vegna varð hún að prófa ný hárskol frá Davines því þau eru ammóníaklaus.

Ég vissi lítið um þá mögnuðu og veganvænu hárliti sem ítalska hárvörumerkið Davines býður upp á en nýverið voru ný hárskol frá merkinu kynnt til leiks sem nefnast View. Þegar ég sá hár fyrirsætnanna á þessari kynningu, eftir að það var meðhöndlað með Davines-hárlitunum, þá vildi ég kynna mér málið betur. Hér fyrir neðan er því útskýring á þeim þremur gerðum af hárlitum sem boðið er upp á hér á landi frá Davines og taldar eru upp þær hárgreiðslustofur sem upp á þá bjóða.

MASK WITH VIBRACHROM Hárlitir sem endast sérlega vel

Mask with Vibrachrom eru varanlegir hárlitir byggðir á kremgrunni og veita hárinu þannig mikla næringu og verður hárið mun gljámeira. Formúlan inniheldur nú kínóaprótín í stað mjólkurprótíns því bæði er það umhverfisvænna og gerir hana veganvæna. Hárlitirnir eru án PPD og parabena.

Hárgreiðslustofur sem bjóða upp á Davines Mask with Vibrachrom:

• 101 Hárhönnun, Blondie, Dízó, Fjelagið, Greiðan, Hárátta, Hárbeitt, Hárkompan, Hárstofan María, Höfuðlausnir, Járnsaxa, Kompaníið, Portið, Senter, Sléttuvegur og Upp á hár.

A NEW COLOUR Hárlitir án ammóníaks

A New Colour eru varanlegir hárlitir sem eru ammóníaklausir og búa því yfir mun minni lykt en hefðbundnir hárlitir. Formúlan inniheldur karótenóíð, litarefni unnin úr grænmeti, og melanín sem veitir góða andoxunarvirkni og fara þeir vel með hárið. Þessir hárlitir eru veganvænir og án parabena.

Hárgreiðslustofur sem bjóða upp á Davines A New Colour:

• Barbarella, Dízó, Hárfjelagið, Hárstofan María og Senter (Sigrún).

VIEW Skol sem eykur gljáa

View er skol sem fer ekki inn í hárið og veitir allt að 50% þekju og dofna fullkomlega. Allt að 93% formúlunnar eru unnin úr náttúrulegum efnum og er hún allt að 99% lífbrjótanleg. Þessi skol henta vel þeim sem vilja hressa upp á hárlitinn, eru með viðkvæmt eða skemmt hár og þeim sem vilja fela grá hár án þess að það sé of augljóst og vilja ekki gráa rót. View-skolið dofnar að fullu á 6-8 vikum eða eftir 15-20 hárþvotta. Formúlan er veganvæn og án parabena.

Hárgreiðslustofur sem bjóða upp á Davines View:

• 101 Hárhönnun, Amber, Blondie, Bold, Dízó, Greiðan, Hárátta, Hárbeitt, Höfuðlausnir, Kompaníið, Portið, Senter og Upp á hár.

Fylgstu með bakvið tjöldin:

Instagram: @snyrtipenninn

Facebook: Snyrtipenninn

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál