Varalitirnir sem draga úr hrukkum

Sensai The Lipstick eru nýir varalitir frá japanska snyrtimerkinu.
Sensai The Lipstick eru nýir varalitir frá japanska snyrtimerkinu.

Þegar ég opnaði svartan og glansandi kassann birtust mér sex gulllituð varalitahulstur sem hver innihéldu tæran, bjartan lit. Pakkningarnar gáfu strax til kynna að þarna væri um að ræða varaliti sem væru stigi fyrir ofan hina hefðbundnu varalitaformúlu.

Sensai The Lipstick

Sensai blandar hér saman húðumhirðu við förðun með varalitaformúlu sem inniheldur Koishimaru-silki, hið fágæta og auðkennandi innihaldsefni Sensai. Silkinu er blandað við önnur innihaldsefni sem hafa mýkjandi áhrif á húðina, næra hana og draga úr öldrunareinkennum húðarinnar. Ríkulegur liturinn þekur varirnar með einni stroku, áferðin er auðvitað silkikennd og ásýndin flauelsmjúk. Formúlan örvar blóðflæði varanna svo varirnar verða ögn þrýstnari og eins inniheldur hún sérstakan Lip Care Complex en þannig dregur hún úr ásýnd lóðréttra lína á og í kringum varirnar. Varalitirnir koma í 15 mismunandi litum.

Sensai Lip Pencil          

Nýju varalitablýantar Sensai koma í sex mismunandi litum og passa vel við nýju varalitina. Þeir eru mjúkir og haldast mjög vel á vörunum.

Sensai Total Lip Gloss        

Flestir þekkja Sensai Total Lip Treatment en Sensai Total Lip Gloss byggir á þeirri formúlu þar sem Koishimaru-silkið er notað til að mýkja og næra varirnar og draga úr fínum línum. Glossið geturðu notað eitt og sér eða sett það ofan á varalitinn fyrir gljámeiri áferð.

Sensai Total Lip Treatment

Þeir sem ekki þekkja Cellular Performance Total Lip Treatment frá Sensai en þetta krem er sérstaklega hanna fyrir varirnar og svæðið í kringum þær. Formúlan inniheldur að sjálfsögðu Koishimaru-silki ásamt nærandi olíum sem endurnæra varirnar og örvar hún blóðflæði húðarinnar sem gerir ásýnd varanna fyllri og skýrari.

 

Fylgstu með bakvið tjöldin:

Instagram: @snyrtipenninn

Facebook: Snyrtipenninn

Sensai The Lipstick í litnum Nadeshiko Pink.
Sensai The Lipstick í litnum Nadeshiko Pink.
Sensai The Lipstick í litnum Kinmokusei Orange.
Sensai The Lipstick í litnum Kinmokusei Orange.
Sensai The Lipstick í litnum Ayame Mauve.
Sensai The Lipstick í litnum Ayame Mauve.
Sensai Lip Pencil í litunum Cheerful Orange, Classy Rose og …
Sensai Lip Pencil í litunum Cheerful Orange, Classy Rose og Feminine Mauve.
Sensai Total Lip Gloss inniheldur m.a. silki og hefur endurnærandi …
Sensai Total Lip Gloss inniheldur m.a. silki og hefur endurnærandi áhrif á varirnar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál