Er hægt að laga skrýtna geirvörtu?

Íslensk kona spyr Þórdísi Kjartansdóttur lýtalækni hvort hægt sé að …
Íslensk kona spyr Þórdísi Kjartansdóttur lýtalækni hvort hægt sé að laga skrýtna geirvörtu. mbl.is/Thinkstockphotos

Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir á Dea Medica, svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá fertugri konu. 

Sæl og blessuð.

Ég er 40 ára kona sem er búin með barneignir. Geirvartan öðru megin hefur alltaf verið sérkennileg, ég gat ekki notað hana við brjóstagjöf. Það er eins og hún sé flöt alveg eða líflaus. Mig langar að spyrja hvort hægt sé að laga svona. Ef ég færi í brjóstalyftingu væri hægt að gera hana „eðlilega“ í leiðinni?

Kærar þakkir

S

Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir á Dea Medica.
Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir á Dea Medica. mbl.is/Árni Sæberg

Sæl og takk fyrir spurninguna,

Það er alveg möguleiki að hjálpa þér með þetta vandamál. Fyrst og fremst þarf að skoða þig og leita skýringa á því. Það gæti verið einfaldast að sprauta sk. fylliefni (hyaluronic-sýru) undir geirvörtuna til þess að ná meira samræmi hjá þér á milli geirvartna. Það kæmi ekki til greina ef þú ættir eftir að hafa barn á brjósti. Aðrir möguleikar (aðgerð) koma vissulega til greina. 

Með bestu kveðjum og gangi þér vel,

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir.

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Þórdísi spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál