Kjóllinn sem breytti lífi Hurley

Hugh Grant og Elizabeth Hurley voru par.
Hugh Grant og Elizabeth Hurley voru par. mbl.is/IAN WALDIE

Fyrirsætan Elizabeth Hurley rifjaði upp í viðtali við Harper Bazaar stundina þegar nafn hennar varð á einni nóttu á allra vörum. Allt einum kjól að kenna. Árið 1994 mætti Hurley sem kærasta Hugh Grant í kjól frá Versace á frumsýningu Four Weddings and a Funeral en kjóllinn þótti helst of glyðrulegur. 

Í myndatöku fyrir viðtalið klæddist hún endurbættri útgáfu af kjólnum sem var festur saman með gylltum öryggisnælum. Í dag þykir ekki tiltökumál ef stjörnur á borð við Kim Kardashian klæðast kjólum í anda Versace-kjólsins fræga en Hurley kennir lélegu tískuviti um kjólavalið. 

Hurley segist hafa verið óundirbúin fyrir kvöldið örlagaríka. „Ég þurfti að finna kjól í flýti fyrir frumsýningu Hugh og á þessum tíma vissi ég ekkert um tísku,“ segir Hurley sem fékk númer hjá almannatenglaskrifstofu sem bauðst til að lána henni eitthvað og segir að þar hafi kjóllinn verið veiddur upp úr plastpoka. „Ég fór með hann heim og greiddi mér sjálf og farðaði, slóst við Hugh um spegilinn sem var ekki einu sinni í fullri lengd í litlu tveggja herbergja íbúðinni okkar,“ segir Hurley og segir hlutina hafa gengið öðruvísi fyrir sig í þá daga. 

Nú er bara spurningin hvort frumútgáfan sé flottari en kjóllinn sem hin 53 ára Hurley klæddist fyrir myndatökuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál