Prjónapeysan sem Katrín elskar

Katrín í peysunni góðu.
Katrín í peysunni góðu. mbl.is/AFP

Uppáhaldspeysa Katrínar hertogaynju þennan veturinn hlýtur að vera vínrauð prjónapeysa frá bandaríska merkinu J. Crew. Katrín nýtur hvert tækifæri sem hún þarf ekki að mæta í hælum og fínum fötum til þess að klæðast peysunni. 

Peysan kostar ekki öll mánaðarlaunin eins og sumt sem dömurnar í bresku kóngafjölskyldunni eru vanar að klæðast. Samkvæmt InStyle kostaði peysan upphaflega 80 bandaríkjadali eða rétt undir 10 þúsund krónur. Nú er hún hins vegar á útsölu og kostar ekki nema 50. 

Hertogaynjan klæddist peysunni þegar hún heimsótti unga skáta í vikunni en við var hún í þröngum gallabuxum eins og svo oft áður sem gjarnan eru frá Zöru og grófum ökklastígvélum frá Chloé. 

Peysan er í uppáhaldi en líka jakkinn og þröngu gallabuxurnar.
Peysan er í uppáhaldi en líka jakkinn og þröngu gallabuxurnar. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál