Leikkonan Amanda Peet er greinilega með sama stíl og fyrrverandi leikkonan Meghan Markle. Peet mætti í nánast eins kjól á frumsýningu Game of Thrones á dögunum og Meghan klæddist í lok febrúar í opinberri heimsókn í Marrokkó.
Kjólarnir voru ekki alveg eins en báðir eru þeir frá Carolinu Herrera með sama munstrinu og úr sama efninu. Kjóll Peet var tekinn saman í mittið en hin ólétta Meghan var í sérsniðnum kjól sem féll vel yfir stóra óléttukúluna.
Kjóllinn sem Peet klæddist sást á tískupallinum í New York 11. febrúar að því er breska Vogue greindi frá þegar Meghan mætti í breyttri útgáfu aðeins tveimur vikum seinna. Er kjóllinn hluti af haust-og vetrarlínu Herrera fyrir árið 2019.
Er hægt að segja til um hvor kjóllinn sé flottari? Eða hvort hönnunin fór annarri konunni betur en hinni? Báðar eru þær að minnsta kosti afar glæsilegar í kjólunum.