Buxurnar sem eru að gera allt brjálað

Diane Keaton birti stolt mynd af buxunum á Instagram.
Diane Keaton birti stolt mynd af buxunum á Instagram. skjáskot/Instagram

Leikkonan Diane Keaton er þekkt fyrir að fara sínar eigin leiðir en nú hafa buxur sem hún á gert allt vitlaust og vilja stjörnuvinir hennar líka eignast þær. Ekki er vitað hvaðan buxurnar koma en þær virðast einna helst hafa verið geymdar aftast í fataskáp Keaton í fjölda ára. 

Segist Keaton hafa aldrei hafa fengið jafnmikið hrós fyrir eitthvað sem hún hefur klæðst. Segist hún hafa klæðst buxunum í flugvél, á hóteli, á safni, úti á götu og í lest. Eftir að hún birti mynd af sér í dökku útvíðu buxunum hefur hrósi haldið áfram að rigna yfir hana. 

Leikkonan Debra Messing hrósar Keaton fyrir buxurnar og spyr hver býr þær til. Virðsit hún vera sérstaklega hrifin af vösunum á buxunum. Leikkonurnar Gwyneth Paltrow og Jennifer Garner vilja einnig vita hver hanni buxurnar. 

Friends-leikkonan Lisa Kudrow bendir þó kannski á hið augljósa og segir buxurnar vera frábærar þar sem hún, Keaton, er í buxunum. 

Hér má sjá stjörnurnar skrifa athugasemdir við mynd Keaton á Instagram

View this post on Instagram

Wait so do we know who makes them. #CommentsByCelebs

A post shared by Comments By Celebs (@commentsbycelebs) on Apr 15, 2019 at 5:02am PDT

Diane Keaton sýndi líka buxurnar að aftan.
Diane Keaton sýndi líka buxurnar að aftan. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál