Óþarfi er að kaupa nýjan fatnað fyrir páskahátíðina. Fylgihlutir geta verið það eina sem þarf til.
Þegar fallegt útlit er annars vegar er leikkonan Marion Cotillard til fyrirmyndar. Hún er þekkt fyrir að ganga í fatnaði frá Coco Chanel. Hún er reyndar ein af þeim sem maður tekur ekki alltaf eftir í hverju eru – heldur hvernig þær eru. Hún notar vanalega fallegan rauðan varalit og fylgihluti sem vekja eftirtekt. Eftirfarandi hlutir eru í hennar anda.