Furðulegur fatastíll Billie Eilish

Þessar loðbuxur hafa vakið nokkra athygli.
Þessar loðbuxur hafa vakið nokkra athygli. skjáskot/Instagram

Hin 17 ára gamla Billie Eilish hefur vakið gríðarlega athygli nýlega, ekki aðeins fyrir nýjustu plötu sína „When we all fall asleep, where do we go?“ heldur einnig fyrir einstaklega áhugaverðan klæðnað sinn.

Eilish er hrifin af víðu sniði og stórum fötum. Stíllinn hennar er nokkuð afslappaður og virðast föt hennar oft þægilegt. Fötin hennar eru oft í stíl og klæðist hún oft aðeins einum lit, þegar hún er ekki klædd regnboganum. Hún virðist líka vera einstaklega hrifin af fötum og fylgihlutum frá dýrum tískuhúsum á borð við Louis Vuitton.

Hún skreytir sig svo með nokkuð skemmtilegum skartgripum, sem liðsmenn Hatara myndu ekki fúlsa við. Eilish leggur mikið upp úr listrænu gildi tónlistar sinnar og núna í vor opnaði hún sýningu í Los Angeles. Sýningin er listræn upplifun af fyrrnefndri plötu hennar, og er eitt herbergi sem lýsir hverju lagi. 

Föt Eilish eru flest öll víð í sniði.
Föt Eilish eru flest öll víð í sniði. skjáskot/Instagram
Eilish er hrifin af settum í sama lit.
Eilish er hrifin af settum í sama lit. skjáskot/Instagram
Eilish klæðist oft litríkum settum.
Eilish klæðist oft litríkum settum. skjáskot/Instagram
Með hatt í stíl.
Með hatt í stíl. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál