Sniðið sem Amal Clooney fer ekki úr

George og Amal Clooney 7. maí.
George og Amal Clooney 7. maí. mbl.is/AFP

Mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney þykir sjaldan slá feilnótu þegar kemur að klæðaburði. Í síðustu viku hefur hún leyft annarri öxlinni að njóta sín og virðist sniðið vera í sérstöku uppáhaldi hjá frú Clooney. 

Þann 7. maí mætti frú Clooney með manni sínum, George Clooney, á frumsýningu í Kaliforníu í grænum stuttum kjól frá Oscar de la Renta. Kjóllinn vakti athygli fyrir að vera með stóra ermi öðrum megin en hin öxlin var ber. 

George Clooney og Amal Clooney. Hér er Amal Clooney í …
George Clooney og Amal Clooney. Hér er Amal Clooney í græna kjólnum frá Oscar de la Renta. mbl.is/AFP

Það vakti því aftur athygli þegar Amal Clooney mætti aðeins þremur dögum seinna í kjól sem einnig leyfði annarri öxlinni að njóta sín á viðburð á vegum Omega.

Gyllti sérsniðni Armani-kjóllinn með kögrinu var allt öðruvísi en græni kjóllinn frá því nokkrum dögum áður fyrir utan þá staðreynd að önnur öxlin fékk að njóta sín ber rétt eins og í græna kjólnum. 

View this post on Instagram

Amal & Gentleman George #Moonwatch #moonlanding50thanniversary @omega #amalClooney #jewelry #Clooney #georgeclooney

A post shared by Alexandre Maras (@alexandremaras) on May 9, 2019 at 10:34pm PDT



View this post on Instagram

Mr & Mrs Clooney #Moonwatch #moonlanding50thanniversary #GeorgeClooney #AmalClooney #jewelry #Clooney @omega

A post shared by Alexandre Maras (@alexandremaras) on May 9, 2019 at 7:06pm PDT




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál