Hárvaran sem Cindy Crawford elskar

Cindy Crawford segist elska Un.Tangled Leave-In Conditioner frá Kevin.Murphy.
Cindy Crawford segist elska Un.Tangled Leave-In Conditioner frá Kevin.Murphy. Instagram.

Þegar ofurfyrirsætan Cindy Crawford telur upp þær fimm snyrti- og hárvörur sem hún notar hvað mest þá tökum við upp blað og blýant, enda er hún ein allra glæsilegasta kona sem við vitum um á sextugsaldri. Eða á öllum aldri. 

Crawford segist þurfa að hugsa sérstaklega vel um hárið með aldrinum. „Áferðin á hárinu hefur breyst með aldrinum og ég þarf einfaldlega að veita hárinu mínu aðeins meiri ást. Ég elska hárvörurnar frá Kevin.Murphy núna og nota sjampóin og hárnæringarnar frá merkinu en þótt ég prófi vörur frá öðrum merkjum er ég alltaf með Kevin.Murphy Un.Tangled Leave-In Conditioner við höndina. Ég þurrka hárið aðeins með handklæði og spreyja þessari næringu í hárið áður en ég greiði það. Ef ég hef farið í hárblástur eða átt góðan hárdag en vakna svo daginn eftir með hárið svolítið úfið þá einfaldlega spreyja ég Un.Tangled í lófana, renni þeim í gegnum hárið og það róar allt niður. Elska þessa hárvöru, takk Kevin,“ segir Crawford. 

Kevin.Murphy Un.Tangled Leave-In Conditioner, 3.990 kr.
Kevin.Murphy Un.Tangled Leave-In Conditioner, 3.990 kr.

Luxury Palette-augnskuggapallettan frá Charlotte Tilbury í litnum The Sophisticate er önnur snyrtivara sem Crawford segist varla geta verið án. „Ég get farið hvert sem er með þessa augnskuggapallettu og ef ég þarf meira en þetta þá fæ ég förðunarfræðing. Þessi palletta er fullkomin bæði í dag- og kvöldförðun. Ef maður er á hraðferð er hægt að nota hana í augabrúnirnar eða jafnvel í rót hársins ef hún er orðin áberandi,“ stingur Crawford upp á. 

Charlotte Tilbury Luxury Palette í litnum The Sophisticate, 6.550 kr. …
Charlotte Tilbury Luxury Palette í litnum The Sophisticate, 6.550 kr. (CharlotteTilbury.com)

Í augabrúnirnar segist Crawford nota Perfect Brow Pencil frá Anastasia Beverly Hills í litnum Soft Brown en hún segist vera hrifin af litaúrvali Anastasia Beverly Hills í augabrúnavörum þeirra.

Anastasia Beverly Hills Perfect Brow Pencil, 3.990 kr. (Nola)
Anastasia Beverly Hills Perfect Brow Pencil, 3.990 kr. (Nola)

Að lokum segist hún nota Chanel Les Beiges Healthy Glow Sheer Colour SPF 15. „Þetta er ekki beint sólarpúður en það gefur þér þetta sólkyssta útlit. Eftir að hafa sett á mig farða set ég stóran púðurbursta í púðrið og set létt yfir andlitið,“ segir Crawford. 

Chanel Les Beiges Healthy Glow Sheer Colour SPF 15, 8.799 …
Chanel Les Beiges Healthy Glow Sheer Colour SPF 15, 8.799 kr.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið þegar Crawford talar um fimm uppáhaldssnyrtivörur sínar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál