Snyrtivörur innblásnar af Konungi ljónanna

Beyoncé talar fyrir Nölu í endurgerð af Konungi ljónanna.
Beyoncé talar fyrir Nölu í endurgerð af Konungi ljónanna. skjáskot/Instagram

Förðunarfræðingurinn Sir John hefur hannað snyrtivörulínu innblásna af Konungi ljónanna í samstarfi við Luminesse og Disney. Sir John hefur farðað margar stjörnur á borð við Priyönku Copra og Kim Kardashian en er þekktastur fyrir að vera aðalförðunarfræðingur tónlistarkonunnar Beyoncé Knowles. Knowles ljáði ljónynjunni Nölu rödd sína í endurgerðinni.

Í viðtali við The Hollywood Reporter segir Sir John að hann hafi fengið innblástur fyrir línuna í safarí-ferð í Afríku. Hann segist ekki hafa þurft að horfa lengra heldur en á landslagið. Hann segir að það hafi ekki verið hamlandi að hanna línu í kringum ljón.

Brot af línunni sem Sir John hannaði.
Brot af línunni sem Sir John hannaði. skjáskot/Instagram

„Það var í rauninni betra, því ég var ekki með einhvern ákveðinn karakter sem setti hömlur á sköpunargáfu mína. Ég þurfti ekki að hanna línu fyrir Öskubusku. Ég held líka að konur kunni að meta fegurð tignarlegra stórkatta, sama hvort það er jagúar, tígrisdýr eða blettatígur. Þau eru svo konungleg og hættuleg, en eru með kvenlega eiginleika sem ná til viðskiptavina minna, sem eru sterkar konur,“ sagði Sir John. 

View this post on Instagram

You won’t be able to take your eyes off this. #SirJohn #LuminessCosmetics

A post shared by Luminess Cosmetics (@luminesscosmetics) on May 31, 2019 at 3:02pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál