Gettu hvar Gylfi keypti brúðkaupsfötin?

Alexandra Helga Ívarsdóttir og Gylfi Þór Sigurðsson voru flott á …
Alexandra Helga Ívarsdóttir og Gylfi Þór Sigurðsson voru flott á brúðkaupsdaginn sinn. skjáskot/Instagram

Gylfi Þór Sigurðsson landsliðsmaður og fótboltastjarna kvæntist ástinni um helgina. Hann var eins og klipptur út úr Vogue í hvítum smóking-jakki með svörtum boðungum og svartri línu á vasalokinu. Undir var hann í hvítri smóking skyrtu með svörtum tölum. Hægt er að kaupa hana HÉR

Bæði jakkinn og skyrtan koma frá ítalska tískuhúsinu Dolce and Gabbana. Tískuhúsið var stofnað 1985 og hefur leiðin síðan þá legið upp á við. Dolce and Gabbana fæst í verslunum víða um heim en um tíma var ódýari lína frá þeim seld hjá Sævari Karli. Það er þó hægt að kaupa flest á netinu og ef þú vilt vera eins og Gylfi í þínu brúðkaupi þá getur þú keypt jakkann HÉR. Hann er meira að segja á lækkuðu verði. Jakkinn kostaði upphaflega um 250 þúsund íslenskar krónur en nú er hægt að fá hann í kringum 50 þúsund krónur ef miðað er við gengi dagsins í dag. 

Skyrtan er frá Dolce and Gabbana.
Skyrtan er frá Dolce and Gabbana.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál