Líkamsfarði Kim gerir allt vitlaust

Kim Kardshian hefur loksins sagt okkur frá leyndarmálinu á bakvið …
Kim Kardshian hefur loksins sagt okkur frá leyndarmálinu á bakvið fullkomna húð. AFP

Kim Kardashian West gefur út líkamsfarða á næstu dögum. Líkamsfarðinn hefur vakið nokkra athygli á Internetinu og hafa margir velt fyrir sér nytsemi hans.

Kardashian sjálf segir að hún hafi í notað líkamsfarða í yfir áratug og sé því ánægð að geta bætt líkamsfarða við snyrtivörulína sínam, KKW Beauty. Hún notar farðann til að hylja æðar og marbletti og einnig til að jafna litinn á húðinni. 

Amma Kardashian, Mary Jo, hafði einhverjar efasemdir um þetta nýjasta útspil ömmustelpunnar sinnar. Kardashian skellti sér þá í heimsókn ásamt dóttur sinni North og máluðu þær hendur Mary Jo. Útkoman er hreint út sagt mögnuð, en farðinn jafnar út húðlitinn og felur bláar æðar á gömlum höndum. 

Það er krem, glimmerpúður og bursti í línunni.
Það er krem, glimmerpúður og bursti í línunni. skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál