Breska konungfjölskyldan og vinir þeirra eru þekkt fyrir að bera áberandi hatta við hin ýmsu tækifæri. Konunglega veðhlaupakeppnin er dæmi um konunglegan viðburð þar sem allir leggja sig í líma við að skarta flottum höttum.
Elísabet Englandsdrottning er þar enginn eftirbátur, en hún klæddist bláum og fáguðum hatti í vikunni.
Ungar konur kátar og glaðar með litríka hatta sína.
mbl.is/AFP
Einn af stærstu höttunum á svæðinu.
mbl.is/AFP
Blár er litur sumarsins.
mbl.is/AFP
Gestir veðhlaupakeppninnar konunglegu taka sjálfu í tilefni dagsins.
mbl.is/AFP
Blóm voru áberandi.
mbl.is/AFP
Þessi unga kona er ekki feimin að klæðast skærum litum.
mbl.is/AFP
Karlar jafnt sem konur setja á sig hatt í tilefni af veðhlaupunum.
mbl.is/AFP