Katrín sumarleg á ljósmyndanámskeiði

Hertogaynjan einstaklega sumarleg og sæt.
Hertogaynjan einstaklega sumarleg og sæt. AFP

Katrín hertogaynja af Cambrigde var sumarleg þegar hún mætti á ljósmyndanámskeið á þriðjudagsmorgun. Hún klæddist sægrænum pífukjól með vínrauðu munstri og var í espadrillum með hæl við. 

Katrín er nýr verndari ljósmyndaverkefnis, Hins konunglega ljósmynda samfélags en drottningin afhenti henni hlutverkið á þriðjudag. Katrín hefur mikinn áhuga á ljósmyndun en hún myndar börn sín og fjölskyldu reglulega.

Hún mætti óvænt á ljósmyndanámskeiðið á vegum samfélagsins, en það var haldið fyrir börn í samstarfi við Action for Children sem vinnur að velferð barna í Bretlandi.

Kjóllinn er í fullkominni lengd, ekki of síður og ekki …
Kjóllinn er í fullkominni lengd, ekki of síður og ekki of stuttur. AFP
Katrín hefur mikinn áhuga á ljósmyndun.
Katrín hefur mikinn áhuga á ljósmyndun. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál