„Þarft ekki að vera í stærð 0“

Mindy Kaling hvetur alla til að klæðast bikiní.
Mindy Kaling hvetur alla til að klæðast bikiní. AFP

Leikkonan Mindy Kaling birti myndir og myndband af sér á Instagram í bikiníi um helgina. Skilaboð hennar eru að fólk þurfi ekki að vera í fatastærð númer 0 til að mega vera í bikiní. Hún hvetur alla þá sem vilja ganga í bikiníi að klæðast bikiníi. 

Kaling segist lengi hafa verið óörugg með líkama sinn, allt þar til hún heimsótti vinkonu sína til Hawaii. Hún segir að allir á Hawaii hafi klæðst bikiníi, óháð líkamsgerð.

Hún minntist einnig á það í myndbandinu að hún er hrifin af uppháum bíkiníbuxum þar sem þær séu flottar á henni og henti hennar líkamsbyggingu. Kaling er hvað best þekkt fyrir hlutverk sitt í þáttunum The Office en hún kom einnig að handriti, leikstjórn og framleiðslu þáttanna. 

Kaling á bikiníinu.
Kaling á bikiníinu. skjáskot/Instagram



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál