Mamma mikil tískufyrirmynd

Aþena Aradóttir mælir með því að klæða sig í föt …
Aþena Aradóttir mælir með því að klæða sig í föt sem manni líður vel í. Eggert Jóhannesson

Arkitektaneminn Aþena Aradóttir er með fallegan og klassískan fatastíl eins og kom í ljós þegar Smartland fékk að kíkja í fataskápinn hennar. Aþena starfar sem flugfreyja á sumrin en mun hefja nám á lokaári í arkitektúr í Listaháskóla Íslands í haust. 

Hvernig er þinn fatastíll?

„Fatastíllinn minn er einfaldur. Ég klæðist mikið jarðbundnum litum og á sumrin elska ég að klæðast aðeins frjálslegri litum. Ég hef alltaf verið mikið fyrir kjóla og yfirhafnir. Í dag kaupi ég mér færri og vandaðri flíkur og pæli í notkunarmöguleikum ásamt gæðum.“

Breytist fatastíllinn þinn á sumrin og er eitthvað sem er nauðsynlegt að eiga í sumar?

„Stíllinn minn er nokkuð samkvæmur árstíðum. Ég klæðist meira kjólum og pilsum á sumrin, og ef mér verður kalt er ég oftast með leðurjakka meðferðis. Svartur leðurjakki er klassísk yfirhöfn til að henda yfir sig. Það er ekkert nauðsynlegt, bara það sem manni líður best í. Ég er búin að klæðast mikið hvítum gallabuxum í sumar og kjólum sem er hægt að klæða bæði upp og niður.“

Aþena er yfirleitt með leðurjakkann með sér.
Aþena er yfirleitt með leðurjakkann með sér. Eggert Jóhannesson

Uppáhaldsverslunin á Íslandi?

„Farmers Market, Zara og Geysir.“

En í útlöndum?

„Ég versla mikið í Samsoe Samsoe, Malene Birger, All Saints og Topshop.“

Verslar þú mikið á netinu?

„Á menntaskólaárunum verslaði ég mjög mikið netinu en það hefur dregið úr því síðustu ár. Ef ég versla af netinu fer ég oftast á Asos. Í dag pæli ég mikið í flíkinni, hversu vönduð hún er, hversu endingargóð og hvort hún mátist vel.“

Bestu kaup sem þú hefur gert?

„Malene Birger-jakki sem ég keypti í Kultur. Hann passar við nánast allt, hann er mjög elegant og vandaður. Góður stílhreinn blazerjakki er það sem allir ættu að eiga í sínum fataskáp. Ég er mjög hrifin af pilsinu frá Ganni sem ég keypti í Farmers Market á útsölu.“

Hvítu gallabuxurnar eru í uppáhaldi.
Hvítu gallabuxurnar eru í uppáhaldi. Eggert Jóhannesson

Áttu þér tískufyrirmynd?

„Mamma hefur alltaf verið með mjög flottan fatastíl og horfi ég mikið upp til hennar. Ég fæ oft föt í láni hjá henni sem ég tel mikinn kost. En annars hefur mér alltaf fundist Laura Hutton vera með mjög smart fatastíl.“

Hvað er á óskalistanum?

„Ég er búin að vera að leita eftir hvítum klassískum samfesting með ermum mjög lengi.“

Aþena í pilsi frá Ganni.
Aþena í pilsi frá Ganni. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál