Er hægt að fjarlægja fitubjúg?

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá konu sem spyr út í fitubjúg á fótum og hvort hægt sé að fjarlægja hann. 

Sæl Þórdís!

Langar að vita hvort fitusog hefur verið framkvæmt hér á Íslandi vegna svokallaðs fitubjúgs, „lipoedema“ á fótum, lærum og leggjum. Sérfræðingur í sogæðasjúkdómum taldi svo ekki vera en þetta virðist vera gert erlendis.

Kær kveðja og þökk.

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica.
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica. mbl.is/Árni Sæberg

Sæl og takk fyrir spurninguna.

Undirrituð hefur einu sinni framkvæmt fitusog vegna lipoedema á Landspítalanum fyrir nokkrum árum fyrir mjög alvarlegt tilfelli af þessum sjaldgæfa sjúkdómi. Ég hef ekki séð skjólstæðinginn í langan tíma og get því ekki tjáð mig um langtíma árangur af þessari meðferð.

Gangi þér vel og með bestu kveðjum

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Þórdísi spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál