Heillaði alla í bláu ermunum

Cate Blanchett og bláu ermarnar.
Cate Blanchett og bláu ermarnar. mbl.is/AFP

Buxnadragt er ekki bara buxnadragt eins og sjá mátti á fötunum sem leikkonan Cate Blanchett mætti í þegar myndin Where'd You Go, Bernadette var sýnd í New York á dögunum. Svört buxnadragt hennar hefur fengið afar jákvæð viðbrögð frá tískuheiminum. 

Buxnadragtin er úr haust- og vetrarlínu Alexander McQueen árið 2019 og er með einstökum bláum silkiermum. Ermarnar minna svolítið á kjóla frá níundaáratugnum en passa fullkomlega við annars einfalda buxnadragtina. 

Síðustu misseri hafa buxnadragtir í öllum stærðum og gerðum komið sterkar inn. Blanchett sannar það hér enn og aftur að buxnadragtir þurfa ekki að vera eins og leiðinlegur skrifstofuklæðnaður. 

Cate Blanchett er alltaf flott.
Cate Blanchett er alltaf flott. mbl.is/AFP
Cate Blanchett í dragtinni frá Alexander McQueen.
Cate Blanchett í dragtinni frá Alexander McQueen. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál