Beckham setur tóninn fyrir haustið

Beckham-fjölskyldan í jakkafötum. Victoria Beckham birti myndina á Instagram.
Beckham-fjölskyldan í jakkafötum. Victoria Beckham birti myndina á Instagram. skjáskot/Instagram

Fatahönnuðurinn Victoria Beckham setti tóninn fyrir haustið í buxnadragt þegar hún mætti á verðlaunahátíð GQ í vikunni með eiginmanni sínum David Beckham og elsta syni þeirra Brooklyn. Feðgarnir voru í svörtum jakkafötum en frú Beckham var langflottust í hvítri buxnadragt. 

Buxnadragtir hafa verið vinsælar undanfarin misseri og verða það greinilega áfram. Ermarnar á jakka Victoriu Beckham voru langar og buxurnar það síðar að skálmarnar náðu vel yfir skóna. Síðar útvíðar buxur hafa einmitt verið í tísku og ef þú vilt fylgja sömu tísku og Victoria Beckham ættirðu ekki að velja þér buxur sem enda við ökkla, sama hversu fallegt skósafn þú átt. 

Hvíta dragtin er að sjálfsögðu úr smiðju Victoriu Beckham, úr svokallaðri „resort“-línu hennar fyrir árið 2020. Samkvæmt Hello er dragtin uppseld en kostaði 1.450 pund eða um 225 þúsund krónur. 

View this post on Instagram

So proud of @davidbeckham’s #GQ cover, celebrating his 20 year journey at the #GQAwards tonight. Xxxx Kisses

A post shared by Victoria Beckham (@victoriabeckham) on Sep 3, 2019 at 1:20pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál