Glitrandi fágun frá Chanel

Óskarsverðlaunaleikkonan Margot Robbie er andlit Gabrielle Chanel Essence Eau de …
Óskarsverðlaunaleikkonan Margot Robbie er andlit Gabrielle Chanel Essence Eau de Parfum.

„Ég ákvað hver ég vildi verða og það er sú sem ég er,“ sagði Gabrielle Chanel og ítrekaði að ekkert væri mikilvægara en frelsið. Nýtt ilmvatn Chanel nefnist Gabrielle Chanel Essence og heldur áfram að endurspegla sögu hennar í gegnum ilm sem einkennist af hvítum blómum. Appelsínublóm, ylang-ylang, tuberose og jasmín koma saman úr verður glitrandi kvenlegur og fágaður ilmur.

Gabrielle Chanel Essence Eau de Parfum byggir á hvítum blómum …
Gabrielle Chanel Essence Eau de Parfum byggir á hvítum blómum og endurspeglar útgeislun Chanel á yngri árum.

Óskarsverðlaunaleikkonan og leikstjórinn Margot Robbie er andlit ilmvatnsins en hún einmitt endurspeglar frjálsa konu sem hefur uppgötvað hver hún vill vera og tekur örlögin í sínar hendur. Árið 2017 kom hið upprunalega Gabrielle Chanel Eau de Parfum á markað og endurspeglaði líf Chanel fyrir hátískuárin. Gabrielle Chanel Essence Eau de Parfum byggist á þeim ilmi en þó með aukinni áherslu á að endurspegla útgeislun Chanel á yngri árum með hreinum og tindrandi ilmnótum. 

Léttleiki, flæði og útgeislun einkenna auglýsingaherferð Garielle Chanel Essence en …
Léttleiki, flæði og útgeislun einkenna auglýsingaherferð Garielle Chanel Essence en Halo með Beyoncé hljómar undir.

Samhliða nýja ilmvatninu kemur sérstök ferðaútgáfa af Gabrielle Chanel Eau de Parfum. Í pakkningunni eru 3 x 20 ml í hentugum umbúðum sem passa í handtöskuna. Umbúðirnar eru sérlega skemmtilegar; þú einfaldlega snýrð toppnum og upp kemur spreyið. 

Gabrielle Chanel Eau de Parfum Twist & Spray er ferðaútgáfa …
Gabrielle Chanel Eau de Parfum Twist & Spray er ferðaútgáfa af upprunalega ilmvatninu og kemur í sérlega hentugum umbúðum.

Til að toppa ilmupplifunina kemur Gabrielle Chanel Parfum Cheveux, hárilmvatn sem þú getur spreyjað á hárburstann þinn eða beint yfir hárið. 

Hárilmvatn frá Chanel er líklega eitt af því huggulegasta sem …
Hárilmvatn frá Chanel er líklega eitt af því huggulegasta sem hægt er að hafa á snyrtiborðinu.

Lagið Halo með Beyoncé hljómar undir í auglýsingu Gabrielle Chanel Essence.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál