Í nákvæmlega eins jakkafötum og Jordan

Stílisti Law Roach birti þessa mynd af stjörnunum í eins …
Stílisti Law Roach birti þessa mynd af stjörnunum í eins jakkafötum. skjákskot/Instagram

Leikkonan Zendaya mætti í fallegum gráum jakkafötum frá Berluti í veislu á tískuvikunni í New York um helgina. Leikkonan er ekki fyrsta stjarnan sem hefur klæðst jakkafötunum á rauða dreglinum en í febrúar var það maður sem klæddist eins jakkafötum frá Berluti. 

Það var leikarinn Michael B. Jordan sem klæddist eins jakkafötum í óskarsverðlaunafögnuði Vanity Fair í febrúar. Jakkafötin fara greinilega konum ekkert síður en körlum. 

Mikil umræða skapaðist á netinu um hvort þeirra hefði nú litið betur út. Stílisti Zendayu, Law Roach, stóðst ekki einu sinni mátið og birti samsetta mynd af stjörnunum og spurði hvort hefði litið betur út. Jordan tók þátt í umræðunni á annarri instagramsíðu og fékk leikkonan hans atkvæði. „Engin samkeppni,“ sagði Jordan meðal annars. 

View this post on Instagram

Who you got Z or B???? wearing @berluti

A post shared by Law Roach (@luxurylaw) on Sep 7, 2019 at 10:08am PDT

View this post on Instagram

Let’s call it a tie. #CommentsByCelebs

A post shared by Comments By Celebs (@commentsbycelebs) on Sep 8, 2019 at 8:18am PDT




View this post on Instagram

🌫

A post shared by Zendaya (@zendaya) on Sep 7, 2019 at 9:18am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál