Baráttan við svarta fílapennsla: Hvað er til ráða?

Ragna Hlín Þorleifsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni.
Ragna Hlín Þorleifsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni.

Ragna Hlín Þorleifsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá konu sem er með endalaust af svörtum fílapenslum. 

Sæl og blessuð

Ég hef alltaf verið með mikið af svörtum fílapenslum á nefinu og hökunni en síðustu árin hef ég einnig tekið eftir að ég er komin með mikið af áberandi holum í kringum nefið og á ennið. Hvað er þetta og hvernig get ég losnað við þetta og fílapenslana?

Kveðja Svarthöfði

Kæri Svarthöfði!

Fílapenslar eru í raun dauðar húðfrumur og húðfita sem safnast saman í útgangsopi fitukirtla. Til eru 2 tegundir fílapensla; svartir fílapenslar sem fá lit sinn vegna oxunar á húðolíu og svo hins vegar lokaðir fílapenslar sem stundum eru nefndir hvíthausar en þessir fílapenslar eru alveg lokaðir og því þýðir ekki að kreista þá. Fílapenslar og bólur eru algengar á unglingsaldri vegna hormónabreytinga en við getum einnig fengið fílapensla og áberandi fitukirtla og/eða svitaholur með aldrinum og þá sérstaklega vegna sólarinnar. Góðu fréttirnar eru hins vegar að það eru til leiðir til að halda þeim í skefjum.

Hér koma nokkur góð ráð húðlæknis:

  1. Komdu því inn í rútínuna þína að nota sólarvörn daglega eða dagkrem með sólarvörn. Passaðu þig á að kaupa sólarvörn sem er ætluð fyrir andlit og forðastu feitar sólarvarnir með olíu því þær eiga það til að stífla kirtla og jafnvel valda bólum.
  2. Þrífðu andlitið kvölds og morgna því sviti, húðfita, óhreinindi, mengun og farði eykur líkurnar á kirtlarnir lokist.
  3. Notaðu vörur sem innihalda salicýlsýru, glycolicsýru eða aðrar ávaxtasýrur en sýrurnar hjálpa til við að fjarlægja dauðar húðfrumur og húðfitu og halda kirtlunum opnum og hreinum.
  4. Notaðu krem sem innihalda retinóíða. Retinóíðar hafa margvísleg áhrif á húðina m.a. að minnka fitumyndun og minnka áberandi svitaholur eða fitukirtla. Auk auki eru retinóíðar kjörmeðferð við bólum og hrukkum og örva kollagen nýmyndun í húð.
  5. Farðu reglulega í ávaxtasýru meðferðir (medical peeling). Ávaxtasýru peeling er frábær leið til að fjarlægja dauðar húðfrumur og endurnýja húðina. Þá er sýra sett á húðina í ákveðin tíma en styrkleikinn ákvarðast m.a. af húðgerð hvers og eins. 
  6. Farðu reglulega í húðslípun. Húðslípun vinnur á efstu lögum húðarinnar og tekur m.a. burt dauðar húðfrumur, hreinsar yfirborð kirtla og minnkar áberandi svitaholur.

Þar sem það eru margar meðferðir í boði væri einnig sniðugt fyrir þig að leita ráðlegginga hjá húðsjúkdómalækni sem gæti þá metið húð þína og mælt með viðeigandi meðferð m.t.t húðgerðar.

Gangi þér vel!

Ragna Hlín Þorleifsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Röngu Hlín spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál