Meiri svefn, minna kaffi, aukin hreyfing og minni streita. Við vitum hvað þarf að gera til að fá frísklegra útlit en þangað til við náum tökum á þessu öllu er gott að luma á góðum húð- og snyrtivörum sem hjálpa okkur að sýnast alla vega vera úthvíldar.
Húðin er sléttari full af raka
Reyndu að koma inn nokkrum vatnsglösum samhliða koffínneyslunni og tileinkaðu þér ofur-rakagefandi húðvörur sem búa yfir innihaldsefnum á borð við hýalúrónsýru. Það er rakasýra sem bindur vatn við húðina og veitir henni fyllri og þrýstnari ásýnd. Rakaserum er nauðsynlegt gegn þreytulegu útliti og mæli ég sérstaklega með The Ordinary Hyaluronic Acid 2% + B5. Þetta er sérlega öflug formúla sem inniheldur hámarksstyrk af hýalúrónsýru í þremur mismunandi mólekúlaþyngdum. Einnig býr formúlan yfir B5-vítamíni sem styður við rakastig húðarinnar.
Húðvörur með peptíðum gera kraftaverk
Peptíð eru keðjur amínósýra og öll prótein eru gerð úr einu eða fleiri peptíðum. Þau eru nauðsynleg húðinni og húðvörur sem innihalda peptíð hafa sýnt sérlega góðan árangur þar sem slíkar formúlur hafa stinnandi áhrif á húðina, draga úr hrukkum og mýkja áferð hennar. The Ordinary Matrixyl 10% + HA er sérlega öflug peptíð-formúla sem gott er að nota á undan dagkremi til að gefa húðinni auka skot af peptíðum. Sömuleiðis er rakagefandi hýalúrónsýra í formúlunni svo þessir dropar hafa sýnt mikla virkni gegn hrukkum og fínum línum.
Neostrata er svo með mjög áhugavert dagkrem og næturkrem sem byggja á peptíðum en fyrst ber að nefna dagkremið. Neostrata Matrix Support SPF 30 sameinar þrjár klínískt prófaðar aðferðir sem hafa einstaka virkni á húðina. Fyrst ber að nefna peptíð sem örva kollagenframleiðslu í dýpri lögum húðarinnar. Næst eru það NeoGlucosamine og retinól sem vinna saman að því að endurbyggja náttúrulegar stoðir húðarinnar, gera hana stinnari og bæta litbrigði hennar. Að lokum inniheldur þessi formúla blöndu af mismunandi andoxunarefnum sem veita húðinni góða alhliða vörn ásamt sólarvörn SPF 30.
Neostrata Cellular Restoration er svo hugsað sem næturkrem en það hannað til þess að örva og endurlífga virkni húðfrumanna og styrkja undirliggjandi stoðir húðarinnar. Formúlan inniheldur stofnfrumuekstrakta úr eplum sem vernda og framlengja líftíma stofnfruma húðarinnar og hjálpa þannig til við að sporna gegn áhrifum öldrunar á húðina. Sérstök peptíð ýta undir kollagenframleiðslu og draga úr sýnileika dýpri lína. Þessi formúla inniheldur svo glýkólsýru, sem örvar framleiðslu kollagens og gerir húðina þannig þrýstnari og stinnari, ásamt maltobionic-sýru og gluconalactone (PHA-sýrur) sem hafa græðandi og endurbyggjandi áhrif á undirlag húðarinnar. Ekstraktar úr greipfræjum granateplum, bláberjum og acai-berjum verja einnig húðfrumurnar gegn áhrifum öldrunar húðarinnar með andoxandi áhrifum.
Unnið gegn bólgum og þrota við augnsvæði
Yfirleitt eru það augun sem koma upp um svefnleysi og streitu svo vertu með öflug augnkrem við höndina. Sniðugt er að geyma þau í ísskápnum því kuldinn vinnur samstundis gegn þrota. Clinique Moisture Surge Eye 96-Hour Hydro-Filler Concentrate veitir öfluga rakagjöf og hefur stinnandi áhrif á augnsvæðið. Þetta er gel-formúla sem er mjög létt en þú getur notað þetta eitt og sér eða sett augnkrem yfir. Það er einnig gott að eiga The Ordinary Caffeine Solution 5% + EGCG til að setja út í augnkrem eða nota eitt og sér til að virkilega keyra upp virkni. Þessi formúla býr yfir háum styrkleika af koffíni og EGCG úr grænu tei til að veita andoxunaráhrif, draga úr bólgum og vinna gegn baugum. Að lokum er stórsniðugt að eiga ávallt Skyn Iceland Hydro Cool Firming Eye Gels sem eru gelskífur sem þú leggur undir augun í 10 mínútur og samstundis finnur þú kælandi og rakagefandi áhrif. Augnsvæðið verður stinnara og sléttara.
Leynivopnin þegar tíminn er naumur
Stundum vaknar maður með allt á móti sér og þá þarf bara að dúndra ljóma í andlitið, nóg af hyljara undir augun og brosa í gegnum tárin. ILIA Liquid Light Serum Highlighter er nauðsynjavara sem sniðugt er að setja út í rakakremið, undir farða, yfir farða eða hvað sem þér dettur í hug og er formúlan bæði kælandi og rakagefandi. Ekki reyna að nota þykkan og fullþekjandi farða ef þér finnst þú vera þreytuleg, notaðu frekar léttan og ljómandi farða eins og Yves Saint Laurent Touche Éclat All-In-One Glow. Þessi farði hefur notið gífurlegra vinsælda þar sem hann frískar samstundis upp á andlitið og veitir miðlungsþekju. Hyljari er auðvitað öflugasta tólið til að framkalla samstundis ferskara útlit en hinn nýi Shiseido Synchro Skin Self-Refreshing Concealer birtir upp augnsvæðið, hylur bauga og helst á sínum stað í allt að 24 klukkustundir.
Kremformúlur góður kostur
Það er skothelt ráð að nota bronser, kinnalit og ljóma til að fríska upp á ásýndina en það er enn betra ef slíkar snyrtivörur koma í kremformi. Með því að nota kremformúlur blandast varan húðinni betur og lítur náttúrulega út. Guerlain kom nýverið með Terracotta Skin-línuna á markað sem samanstendur af farða, ljóma og kinnalit sem allt kemur í stiftformi og eru svo fallegar kremformúlur sjaldséðar. Þú getur notað til dæmis dekkri tón af stiftfarðanum sem bronser og ljómastiftin eru eins og ,,filter” á húðinni. Í boði er svo einn kinnalitur sem fer öllum vel. Prófaðu þessi tvö stifti saman og við lofum að þú munt ávallt hafa þau við höndina.
Fylgstu með á samfélagsmiðlum:
Instagram: @snyrtipenninn
Facebook: Snyrtipenninn