Allt annað yfirbragð með sérsaumi

Vilhjálmur S. Vilhjálmsson verslunarstjóri í Herragarðinum.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson verslunarstjóri í Herragarðinum. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson eða Villi í Herragarðinum, eins og hann er oftast kallaður, hefur verið í herrafatabransanum í meira en 20 ár. Hann segir að það færist í vöxt að menn láti sérsauma á sig föt því menn lendi oft á milli stærða. Ef kraginn passar á skyrtunni er hún kannski of víð yfir búkinn og þar fram eftir götunum.

Þeirra eigin lína Herragarðurinn-sérsaumur samanstendur af skyrtum frá Stenströms og buxum og jökkum frá ítalska merkinu Corneliani. Í dag og á morgun verða sérfræðingar frá þessum merkjum í Herragarðinum. Villi segir fjölmargar ástæður fyrir því hvers vegna sérsaumur borgi sig.

Hér er Villi ásamt samstarfsmönnum sínum.
Hér er Villi ásamt samstarfsmönnum sínum.

„Það má segja að það séu aðallega tvær meginástæður fyrir að menn velja sér sérsaumuðu föt. Margir hverjir einfaldlega passa ekki í hefðbundnar stærðir og þurfa því sérsaum í jakkafötum eða skyrtum. Ég er til dæmis með frekar breiðan háls og þarf því alltaf sérsaumaða skyrtu svo mér líði vel í henni án þess að hún sé of víð. Einnig þarf yfirleitt að stytta ermar hjá mér og sérsaumaður jakki fer mér betur. Karlmenn eru mun meðvitaðri um það í dag heldur en áður fyrr að fötin passi vel og langflestir vilja ekki hafa fötin of víð. Hin nálgunin er að sinna þeim sem hafa eitthvað sérstakt í huga. Sérstaklega yngri karlmenn sem eru duglegir að fylgjast með nýjustu straumum og stefnum og hafa ákveðnar skoðanir. Við erum með mörg hundruð efni og ótal snið og ætti að vera nánast ómögulegt að finna ekki eitthvað sem passar. Svo er auðvitað della í þessu eins og í tækjum og bílum og menn sem hafa hellt sér í þetta hafa áhuga á efnum frá ákveðnum vefurum og vilja búa til ákveðið útlit sem sker sig úr,“ segir Villi.

Villi segir að sérsaumuð föt hafi allt annað yfirbragð en föt sem koma í stöðluðum stærðum.

„Sérsaumuð föt eru auðvitað sérmæld. Þá er gert ráð fyrir því að menn geti verið með mislangar hendur, misháar axlir og svo framvegis. Þá finnum við út hvernig jakki og buxur sitja best á viðskiptavininum miðað við vaxtarlag. Það er alltaf hægt að gera betur í að láta föt passa betur. Ég segi oft við viðskiptavini mína að föt númer tvö í sérsaumi séu bestu fötin. Þá getum við fíniserað smáatriðin og viðskiptavinurinn er búinn að reynslukeyra fötin og veit hverju honum líður best í. Við förum í nánustu smáatriði eins og hversu þykkt fóðrið á að vera og hversu mikið efni á að vera inn í axlahluta jakkans auk ótal annarra atriða,“ segir hann.

Er algengt að hefðbundnar stærðir passi ekki?

„Í sjálfu sér ekki. Við erum örugglega með um 20 snið af jakkafötum í Herragarðinum og getum þjónustað meginþorra allra með þeim. En kröfur viðskiptavina aukast alltaf. Fyrir tuttugu árum þegar ég var að byrja í bransanum voru allir eiginlega mikið eins og næsti maður og í víðari fötum en gengur og gerist í dag og sniðið því ekki eins mikilvægt. Þetta snýst meira um þjónustu og valmöguleika. Því er ekki endilega hægt að segja að menn þurfi einungis sérsaumuð föt. En sérsaumurinn er frábær möguleiki til að eiga eitthvað sérstakt og líka skemmtilegt að láta stjana við sig og fá ráðgjöf frá fagmönnum um hvað passar.“

Einn virðulegur maður sagði að þegar hann væri búinn að fá skyrtu sem passaði yfir magann á sér þá væri kraginn allt of hár og mikill. Þekkir þú þetta?

„Já, algjörlega. Menn eru mishálslangir og hár kragi er ekki fyrir menn sem eru hálsstyttri. Fyrir utan það þá eyðileggst skyrtan fyrr af núning i við skeggið og er óþægileg. Þess vegna höfum við til dæmis möguleika á mismunandi kragahæðum fyrir viðskiptavininn og ótal gerðir af krögum. Við erum með dyggan kúnnahóp sem lætur sérsauma á sig skyrtur.“

Með sérsaumi er hægt að fá allskonar óskir uppfylltar eins …
Með sérsaumi er hægt að fá allskonar óskir uppfylltar eins og að fá eitt rautt hnappagat.

Er dýrt að láta sérsauma á sig?

„Allt sem er sérframleitt er auðvitað dýrara en það sem er framleitt í magni. Áður fyrr var mun dýrara að láta sérsauma á sig miðað við föt af slánni en munurinn í dag er ekki svo mikill. Þetta fer auðvitað líka eftir efnisvali. Til dæmis eru sérsaumuð jakkaföt frá okkur alveg frá 90 þúsundum upp í nokkur hundruð þúsund ef menn vilja eitthvað úr sjaldgæfari eða dýrari efnum. Algengasta verðið er þó yfirleitt um 110-120.000 sem er ekki langt frá verði vandaðra jakkafata. Mér finnst það ekki dýrt fyrir handverk sem er sérgert fyrir þig. Maður getur sett þetta í samhengi við vandað úr eða skartgrip. Það er bara gaman að eiga eitthvað sérstakt og það sem er vandaðra kostar auðvitað aðeins meira. Við gerum kröfur um að bjóða einungis það besta sem til er á markaðnum og öll efni eru sérvalin af okkur og þurfum við að læra á það hvað hentar hverjum og einum og þekkja eðli og mismun allra efna. Viðskiptavinir okkar geta alltaf verið fullvissir um að fá úrvalsefni frá úrvalsframleiðendum og þjónustu starfsmanna sem hafa unnið við að mæla jakkaföt í fjöldamörg ár. Ég mældi mín fyrstu sérsaumuðu föt fyrir tuttugu árum þegar ég vann hjá Sævari Karli og Alvaro Calvi sem er yfirmaður sérsaums hjá mér hefur áratuga reynslu í þessum málum. Síðan fáum við oft gesti að utan sem eru sérfræðingar í þessum málum bæði til að halda okkur við efnið og hitta viðskiptavini okkar.“

Með sérsaumi er hægt að velja fóður í þeim lit …
Með sérsaumi er hægt að velja fóður í þeim lit sem þér finnst fallegur.

Þegar Villi er spurður út í herratískuna segir hann að hún hafi sjaldan verið skemmtilegri að hans mati.

„Ég myndi segja framleiðendur byðu upp á vandaðri efni en áður og sýni fram á að uppruni efna sé frá viðurkenndum stöðum og tekið sé tillit til umhverfisins og maður sér minna af gerviefnum eins og var mikið um á tímabili. Það má því segja að það sé einskonar „endurkoma herramannsins“ þessi misserin. Vandaðri efni og meiri áhersla á handbragð. Einnig finnst mér gaman að sjá að köflótt munstur og jarðlitir eru áberandi í bland við flóru blárra tóna. Mér finnst gaman að sjá unga stráka koma til okkar og kaupa vandaða skyrtu og leggja metnað í klæðaburði. Einnig erum við að auka mikið við okkur í hversdags- og sportfatnaði sem er þægilegt að vera í þegar maður er ekki í vinnu. Polo Ralph Lauren-línan er til dæmis mjög sportleg og hefur verið að koma mjög sterk inn þetta haustið.“

Hvaða litur á jakkafötum er mest móðins núna?

„Ég gef sama svar og ég hef gefið í yfir 20 ár. Blá jakkaföt eru alltaf vinsælust. En blátt er ekki bara blátt. Ég á til dæmis eiginlega bara blá föt en þau eru mjög mismunandi. Ég myndi segja að betra væri að hugsa um snið, áferð og munstur frekar en liti þegar talað er um hvað sé móðins. Núna eru það aðeins grófari efni og eitthvað sem er meira „casual“ frekar en hitt. Látlaus köflótt eða flannelefni eru líka mjög vinsæl. Grunnfataskápurinn á að samanstanda af nokkrum bláum jakkafötum og jökkum, eiga ein svört, ein grá og vandaðar bómullarbuxur og gallabuxur við. Einnig kemst maður langt á því að eiga nóg af bláum og hvítum skyrtum.“

Villi segir að algengt sé að skyrtur passi ekki á …
Villi segir að algengt sé að skyrtur passi ekki á menn þegar þær koma í stöðluðum stærðum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál