10 frábær krem fyrir vetrarkuldann

Ekki láta kuldann koma í veg fyrir að húðin þín …
Ekki láta kuldann koma í veg fyrir að húðin þín sé ljómandi og vel nærð. Mike Coppola/AFP

Þegar kólna tekur er það þumalputtaregla að skipta yfir í þéttari krem sem innihalda meiri næringu og vernd en þegar hitastigið lækkar hrapar rakastig húðarinnar með því. Á haustin kaupum við okkur gjarnan hlýrri fatnað og ef þú ert ekki týpan til að ganga um með skíðagrímu, til að vernda andlitið, er sniðugt að kaupa gott og verndandi andlitskrem fyrir veturinn. Elsku andlitið kemst jú í snertingu við allan veðurofsann. Hér má finna nokkur af okkar uppáhaldskremum til að vernda húðina fyrir allar húðgerðir.

Andlitskrem fyrir venjulega húðgerð

Guerlain Abeille Royale Day Cream
Nýju Abeille Royale-kremin frá Guerlain búa yfir frábærum innihaldsefnum til að næra húðina en hunang og royal jelly eru í aðalhlutverki. Í boði eru þrjú dagkrem fyrir mismunandi húðgerðir ásamt nætukremi en Guerlain Abeille Royale Day Cream er þó ætlað öllum húðgerðum. Formúlan er mjög nærandi og byggir á BlackBee-viðgerðartækni Guerlain ásamt C-vítamíni. Þannig vinnur kremið til að þétta húðina, draga úr fínum línum og ýta undir ljóma húðarinnar.

Guerlain Abeille Royale Day Cream.
Guerlain Abeille Royale Day Cream.

Biotherm Life Plankton Sensitive Balm
Nærandi formúla sem hentar öllum húðgerðum en vinnur þó að því að styrkja viðkvæmari húðgerðir með því að draga úr þurrki, roða og pirring. Umbúðirnar eru sérlega áhugaverðar en þrátt fyrir að kremið komi í krukku eru þær loftþéttar með sérstöku innsigli yfir toppnum.

Biotherm Life Plankton Sensitive Balm.
Biotherm Life Plankton Sensitive Balm.

Andlitskrem fyrir þurra húðgerð

Lancôme Absolue Rich Cream 
Þetta krem býr yfir sérlega mjúkri áferð og veitir húðinni 24 stunda raka. Formúlan er mjög nærandi og býr m.a. yfir kókosolíu, prótín og rósaolíu. Lykilhráefni Absolue-andlitskremanna er svokallað Grand Rose Extract sem unnið er úr þremur mismunandi gerðum af rósum. Þetta krem hjálpar einnig til við endurnýjun ysta húðlagsins og gerir húðina mýkri og rakafyllri.

Lancôme Absolue Rich Cream.
Lancôme Absolue Rich Cream.

Pestle & Mortar Hydrate Moisturiser
Pestle & Mortar er nýtt húðvörumerki á Íslandi sem hefur hlotið mikið lof erlendis. Merkið er ekki að flækja hlutina og býður eingöngu upp á eitt andlitskrem fyrir allar húðgerðir en formúlan er þó sérlega nærandi og rakagefandi. Hydrate Moisturiser inniheldur sömuleiðis peptíð og andoxunarefni sem gera við skemmdir í húðinni og draga úr fínum línum.

Pestle & Mortar Hydrate Moisturiser.
Pestle & Mortar Hydrate Moisturiser.

Andlitskrem fyrir blandaða húðgerð

Sensai Absolute Silk Fluid
Absolute Silk er nýjasta lína Sensai og inniheldur sérstaka Micro Mousse-húðmeðferð ásamt tveimur andlitskremum. Koishimaru Silk Royal er lykilhráefni nýju formúlanna en það er uppfærð útgáfa af Koishimaru-silkinu sem Sensai notar í vörur sínar. Sensai Absolute Silk Fluid er léttara kremið af þeim tveimur sem í boði eru og veitir formúlan húðinni góðan raka, næringu og ýtir undir heilbrigðan ljóma.

Sensai Absolute Silk Fluid.
Sensai Absolute Silk Fluid.

Eucerin UltraSENSITIVE Soothing Care     
Mjög góð og einföld formúla sem er laus við ilm- og litarefni. Í boði er útgáfa fyrir venjulega/þurra húð og svo önnur útgáfa fyrir venjulega/blandaða húð. Sú síðarnefnda hefur hentað fólki með rósroða vel og hefur mýkjandi áhrif.

Eucerin UltraSENSITIVE Soothing Care.
Eucerin UltraSENSITIVE Soothing Care.

Andlitskrem fyrir olíukennda húðgerð

Bare Minerals True Oasis Oil-Free Replenishing Cream
Einstök gelkennd og olíulaus formúla sem inniheldur peptíð, keramíð og amínósýrur til að styrkja yfirborð húðarinnar. Steinefni og þörungar hjálpa til við að næra húðina og laga áferð hennar.

Bare Minerals True Oasis Oil-Free Replenishing Cream.
Bare Minerals True Oasis Oil-Free Replenishing Cream.

Skyn Iceland The Antidote Cooling Daily Lotion
Kælandi rakagel sem er þyngdarlaust á húðinni. Formúlunni er ætlað að hjálpa húðinni olíukenndri húð að komast í betra jafnvægi og hafa róandi áhrif. The Antidote Cooling Daily Lotion inniheldur m.a. íslenskan þara, omega fitusýrur og C-vítamín sem stuðlar að bjartari og jafnari áferð húðarinnar.

Skyn Iceland The Antidote Cooling Daily Lotion.
Skyn Iceland The Antidote Cooling Daily Lotion.

Andlitskrem fyrir viðkvæma húðgerð

Aveda Botanical Kinetics All-Sensitive Lotion
Þetta er skothelt andlitskrem fyrir allar húðgerðir og þá sérstaklega viðkvæmar. Formúlan er ilm- og litarefnalaus og býr yfir sérlega nærandi og græðandi innihaldsefnum á borð við lífrænt aloe vera, hafra, koffín og þara. Þessi formúla hefur gert magnaða hluti fólk með exem og roða.

Aveda Botanical Kinetics All-Sensitive Lotion.
Aveda Botanical Kinetics All-Sensitive Lotion.

Chanel La Solution 10 De Chanel
Eins og nafnið gefur til kynna býr þessi formúla eingöngu yfir 10 innihaldsefnum sem saman vinna að því að næra og mýkja húðina. La Solution 10 er ilm- og litarefnalaust og er sérlega gott fyrir húðina allan ársins hring.

Chanel La Solution 10 De Chanel.
Chanel La Solution 10 De Chanel.

Fylgstu með á samfélagsmiðlum:

Instagram: @snyrtipenninn
Facebook: Snyrtipenninn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál