Skiptu súkkulaðinu út fyrir snyrtivörur

Mariah Carey syngur inn jólin ár hvert þar sem hún …
Mariah Carey syngur inn jólin ár hvert þar sem hún segist einungis vilja þig í jólagjöf. Líklega mun hún hugsa sig tvisvar um þegar hún sér snyrtivörudagatölin í ár. Skjáskot/Pinterest.

Ég er ein af þessum sem ætlar sér í megrun fyrir jólin eða byrja í ræktinni á nýju ári. Hluti af þessum blekkingum er að neita sér um súkkulaði í desember, baka ekki jólasmákökur og svona má lengi telja. Ekki þarf þó meira en eitt slæmt stefnumót og þá er ég mætt í Hagkaup og kaupi mér Marsipan-súkkulaði frá Lindu til draga úr vonbrigðunum. 

Núna held ég þó, að mér takist ætlunarverk mitt. Snyrtivörumerkin og -verslanir eru komin með stórglæsileg jóladagatöl á markað sem innihalda 24 litlar útgáfur af vinsælustu snyrtivörum þeirra. Ef eitthvað fær mig til að sleppa súkkulaði, þá eru það líklega snyrtivörur.

Þetta eru gjarnan kostakaup og þú færð mikið fyrir peninginn. Sumum er hreinlega sama hversu margir dagar eru til jóla, þeir kaupa dagatölin til að fá allar litlu snyrtivörurnar til að prófa eða til að geyma í veskjum sínum þar sem stærðin er hentug. Í þessari grein verður farið yfir 7 dagatöl sem eru hverju öðru „girnilegri“.

Bare Minerals 24 Days of Clean Beauty, 15.990 kr. 

Bare Minerals ættu flestir að þekkja en merkið byggir á hreinum snyrtivörum úr steinefnum. Í þessu dagatali eru bæði snyrti- og húðvörur en snyrtivörurnar koma í fallegum náttúrulegum tónum svo þær ættu að henta flestum húðtónum. 

Bare Minerals 24 Days of Clean Beauty, 15.990 kr.
Bare Minerals 24 Days of Clean Beauty, 15.990 kr.

Armani Beauty Advent Calendar, 39.190 kr. 

Þetta er dagatal sem hæfir drottningum landsins en í fyrsta sinn kemur Armani Beauty með snyrtivörudagatal á markað. Förðunar- og húðvörur ásamt ilmvötnum leynist í þessu dagatali sem kemur í mjög takmörkuðu upplagi til landsins. Fæst í Hagkaup Kringlunni, Smáralind, Garðabæ og á Akureyri og í Lyf & Heilsu Kringlunni. 

Armani Beauty Advent Calendar, 39.190 kr.
Armani Beauty Advent Calendar, 39.190 kr.

L'Occitane Signature Advent Calendar, 6.990 kr. 

Nærandi og mýkjandi vörur má finna í jóladagatali L'Occitane en það er á mjög hagstæðu verði. Aðventudagatalið kemur í formi bókar sem segir söguna um möndlutréð en á sjötta áratugnum hurfu möndlutrén algerlega úr landslagi Provence. Árið 2000 tókst L'Occitane, með hjálp samstarfsaðila sinna, að endurheimta möndlutrén í fjallahlíðar Provence og er landslag þess fullt af möndlutrjám í dag. 

L'Occitane Signature Advent Calendar, 6.990 kr.
L'Occitane Signature Advent Calendar, 6.990 kr.

Lancôme Advent Calendar, 23.990 kr. 

Lancôme færir okkur nokkrar af bestu vörum merkisins. Maskari, varalitir, húðvörur og ilmvatn, hvað er hægt að biðja um meira? 

Lancôme Advent Calendar, 23.990 kr.
Lancôme Advent Calendar, 23.990 kr.

Biotherm 24 Days of Skincare  9.900 kr.

Dagatalið frá Biotherm inniheldur eingöngu húðvörur. Það er óhætt að segja að maður finni minna fyrir jólastreitunni þegar maður hefur mjúkar húðvörur við höndina. 

Biotherm 24 Days of Skincare 9.900 kr.
Biotherm 24 Days of Skincare 9.900 kr.

Liberty London Beauty Advent Calendar 2019, 36.000 kr.

Það er óhætt að segja að Liberty London færi okkur rjómann af vöruúrvali verslunarinnar í þessu dagatali. Það inniheldur vörur frá merkjum á borð við NARS, Aveda, Byredo og Hourglass. Fæst á www.libertylondon.com og senda þeir til Íslands. 

Liberty London Beauty Advent Calendar 2019, 36.000 kr. (Verð er …
Liberty London Beauty Advent Calendar 2019, 36.000 kr. (Verð er fyrir utan skatta og innflutningsgjöld.)

The Harrods Beauty Advent Calendar, 35.000 kr. 

Yfirmaður snyrtivörudeildar Harrods, Mia Collins, handvaldi allar vörur í þetta veglega dagatal sem líklega býr yfir gífurlega fjölbreyttu úrvali af snyrti-, húð- og hárvörum. Þarna má finna vörur frá Laura Mercier, Foreo, Bioeffect, 111Skin, Guerlain, Sensai og svona mætti lengi telja. Þú getur skoðað dagatalið nánar og pantað það á vefsíðunni www.harrods.com.

The Harrods Beauty Advent Calendar, 35.000 kr. (Verð er fyrir …
The Harrods Beauty Advent Calendar, 35.000 kr. (Verð er fyrir utan skatta og innflutningsgjöld.)

Sjáumst á samfélagsmiðlunum:

Instagram: @Snyrtipenninn
Facebook: Snyrtipenninn 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál