Ertu í rétta brjóstahaldaranum?

Ólíkt því sem Victoria's Secret sýnir á tískusýningum sínum mælir …
Ólíkt því sem Victoria's Secret sýnir á tískusýningum sínum mælir raunveruleikastjarnan Bethenny Frankel með látlausum brjóstahöldurum. AFP

Raunveruleikastjarnan Bethenny Frankel hefur sitthvað að segja um hvernig brjóstahöldurum konur eiga að klæðast. Frankel sem er að vinna með nærfatamerki segir að flestar konur séu í vitlausri stærð. Eins glatað og það hljómar að láta mæla á sér brjóstin í Kringlunni þá er kannski betra að vera í réttri brjóstahaldarastærð. 

Flestar konur kannast við það að fara úr brjóstahaldaranum um leið og þær koma heim til sín. Það gæti þó verið út af því að brjósthaldarinn þrengir aðeins að, er aðeins of stór eða of lítill eins og Frankel segir í viðtali á vef E!.

The Real Housewives of New York City-stjarnan segir að hún hafi verið í kolrangri stærð áður en hún fór í mælingu. Hún taldi sig eiga að vera í 34C eða D en í ljós kom að hennar rétta stærð var 32F. Þrátt fyrir það eru brjóstin hennar ekki jafnstór og fólk myndi oft ímynda sér þegar það hugsar um brjóst í F-skál. „Það er af því að númerin eru minni og skálarnar stærri. Skálarnar og númerin er ekki eins og við erum vanar að sjá þær,“ segir Frankel. 

Frankel er þó ekki bara á þeirri skoðun að konur eigi að vera í réttu stærðinni. Í viðtali á vef Us Weekly var hún með sterka skoðun á útliti brjóstahaldara. Ólíkt því sem margar verslanir reyna að selja mælir Frankel með einföldum brjóstahöldurum. 

„Nítíu prósent af brjóstahöldurunum þínum ættu að vera saumalausir brjóstahaldarar af því ég veit að við erum allar svo vongóðar en hversu oft þarftu virkilega á að halda að vera í kynþokkafullum brjóstahaldara?“ Sagði Frankel hreinskilin.

Frankel sem á líklega fleiri brjóstahaldara en hin venjulega kona segir að flestir brjóstahaldarar sem hún eigi séu klassískir og án sauma. Kannski fimm til tíu prósent af brjóstahöldurum hennar eru kynþokkafullir. Þessir fáa prósenta fær oft að liggja aftast í fataskápnum þangað til að Valentínusardagurinn rennur upp eða afmæli. 

Bethenny Frankel er í 32F.
Bethenny Frankel er í 32F. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál