Leggðu grímuna á hilluna

Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bündchen notar yfirleitt létta farða til að …
Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bündchen notar yfirleitt létta farða til að fá meiri ljóma í húðina. Hún leyfir freknum að koma í gegn og er ávallt förðuð á mjög náttúrulegan hátt. Skjáskot/Instagram.

Þungur og þykkur farði er ekki til þess fallinn að framkalla það besta í húðinni. Mikil þróun hefur átt sér stað í þróun farða og hefur aldrei verið jafnauðvelt að finna farða sér við hæfi. Nýjustu farðarnir eru sérlega léttir, þunnir en öflugir svo það er kominn tími á að taka niður gríma og fagna formúlum sem ýta undir náttúrulega fegurð okkar.

Ljómandi farði með gulli og perlum frá Guerlain 

Flestir muna eftir hinum kynngimagnaða Parure Gold-farða frá Guerlain og er óhætt að segja að miklar væntingar hafi því verið gerðar til hinnar endurbættu útgáfu af honum. Guerlain Parure Gold Radiance Foundation SPF 30 er nýlega kominn á markaðinn og veitir miðlungs þekju sem endast á í allt að 24 klukkustundir. Á sama tíma veitir formúlan húðinni stöðugan raka og ljómandi áferð með gull- perluögnum. Parure Gold-farðinn býr sömuleiðis yfir húðbætandi eiginleikum sem styður við kollagenbúskap húðarinnar. 

Guerlain Parure Gold Radiance Foundation SPF 30.
Guerlain Parure Gold Radiance Foundation SPF 30.

Farðinn sem ekki þarf að púðra frá Anastasia Beverly Hills

Anastasia Beverly Hills Luminous Foundation veitir húðinni fallegan og náttúrulegan ljóma og situr hann vel á húðinni svo ekki þarf að púðra yfir hann. Formúlan veitir miðlungs þekju og og hentar öllum húðgerðum.

Anastasia Beverly Hills Luminous Foundation.
Anastasia Beverly Hills Luminous Foundation.

Púðuragnir sem fullkomna húðina í farða frá Chanel 

Chanel Ultra Le Teint Velvet SPF 15 er olíulaus farði sem inniheldur Perfect Light Control Complex en það eru tvær gerðir af púðurögnum sem draga úr ásýnd svitahola og misfellna í húðinni. Farðinn veitir miðlungs þekju og flauelskennda áferð.

Chanel Ultra Le Teint Velvet SPF 15.
Chanel Ultra Le Teint Velvet SPF 15.

Tæknilegur farði með sólarvörn frá Shiseido

Shiseido Synchro Skin Self-Refreshing Foundation SPF 30 er nýr farði frá japanska förðunarmerkinu en formúlan býr yfir sérstakri ActiveForce-tækni sem viðheldur ásýnd hans á húðinni í allt að 24 klukkustundir. Farðinn er olíulaus, þyngdarlaus, auðvelt að blanda og veitir miðlungs þekju. Hann hentar öllum húðgerðum, er ilmefnalaus og veitir húðinni vernd með SPF 30 sólarvörn.

Shiseido Synchro Skin Self-Refreshing Foundation SPF 30.
Shiseido Synchro Skin Self-Refreshing Foundation SPF 30.

Silkikenndur farði frá Sensai 

Sensai Flawless Satin Foundation SPF 20 er léttur farði sem veitir húðinni miðlungs þekju og frískandi rakagjöf ásamt náttúrulegan ljóma. Formúlan inniheldur silkipúður sem hefur mýkjandi áhrif á húðina og sólarvörn SPF 20 til að vernda hana. 

Sensai Flawless Satin Foundation SPF 20.
Sensai Flawless Satin Foundation SPF 20.

Léttur en langvarandi farði frá Lancôme

Lancôme Idole Ultra Wear Nude SPF 19 er mjög léttur farði sem endist í allt að 24 klukkustundir á húðinni. Farðinn veitir létta þekju og er náttúruleg og minnkar ásýnd svitahola. Formúlan er vatns- og svitaheld. 

Lancôme Idole Ultra Wear Nude SPF 19.
Lancôme Idole Ultra Wear Nude SPF 19.

Rakagefandi og náttúruleg innihaldsefni frá Guerlain

Guerlain L´Essentiel Natural Glow Foundation SPF 20 inniheldur 97% náttúruleg innihaldsefni og veitir húðinni fallegan ljóma og ferskleika sem endist í allt að 16 klukkustundir. Þekjan er létt til miðlungs en auðvelt er að byggja hana upp. Formúlan býr sömuleiðis yfir húðbætandi eiginleikum, leyfir húðinni að anda, veitir henni raka og verndar gegn umhverfismengun.

Guerlain L´Essentiel Natural Glow Foundation SPF 20.
Guerlain L´Essentiel Natural Glow Foundation SPF 20.

Nærandi formúla í stiftformi frá Bare Minerals

Bare Minerals Complexion Rescue Hydrating Foundation Stick SPF 25 byggir á nærandi innihaldsefnum á borð við rauða þörunga og andoxunarefni. Stiftið er sérlega hentugt í töskuna og auðvelt að bera það á sig en þú finnur samstundis fyrir auknum raka í húðinni.

Bare Minerals Complexion Rescue Hydrating Foundation Stick SPF 25.
Bare Minerals Complexion Rescue Hydrating Foundation Stick SPF 25.

Ferkur og ljómandi farði frá Yves Saint Laurent 

Yves Saint Laurent Touche Éclat Le Teint veitir húðinni einstakan ljóma, miðlungs til mikla þekju sem þó kemur náttúrulega út. Formúlan er hönnuð til að vera mjög létt á húðinni og segir YSL að þetta sé eins og 8 klukkustunda svefn í farðaformi.

Yves Saint Laurent Touche Éclat Le Teint.
Yves Saint Laurent Touche Éclat Le Teint.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál