Leyndarmálið á bakvið útlit Aniston

Leikkonan Jennifer Aniston setur sjálfa sig í fyrsta sætið og …
Leikkonan Jennifer Aniston setur sjálfa sig í fyrsta sætið og hvílir sig á sunnudögum. mbl.is/AFP

Leikkonan Jennifer Aniston hefur sýnt það og sannað að hún verður bara betri með aldrinum. Þetta staðfestir hún á nýjum Instagram reikningi sínum þar sem hún birti nýverið ljósmynd af sér á leið í vinnuna í stuttum kjól og ljósum hælaskóm við. 

Ástæðan fyrir því að Aniston lítur vel út er sú að hún gefur sjálfri sér tíma eins og kemur fram á síðu Shape. Sunnudagar eru spa dagar að hennar mati þar sem hún hugar að því að hvíla sig og næra húðina. Hún er dugleg að æfa líkamsrækt og jóga og trúir á það að koma sér upp föstum liðum þegar kemur að matarræði. Sem dæmi var hún aldrei mikið fyrir morgunmat, en kom sér upp skipulagi sem virkar vel fyrir hana. Hún drekkur prótein drykki á morgnana með spínati í og er megin uppistaða í matarræði hennar yfir daginn salat og grænmeti. 

View this post on Instagram

Girl’s best friend... bring Clyde to work day.

A post shared by Jennifer Aniston (@jenniferaniston) on Nov 13, 2019 at 1:02pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál