Gullpenninn frá YSL í hátíðabúningi

Hátíðalína snyrtivörumerkisins YSL iðar af þokka og glæsileika. Umbúðirnar eru einstakar en þær eru skreyttar glimmerstjörnum. Línan heitir Shine on collection, en þar er að finna vinsælustu vörur merkisins í safnútgáfum.

Touche Éclat-ljómapenninn er þar á meðal, en hann jafnar litarhátt, gefur fallegan ljóma, grynnkar línur og opnar augnsvæðið. Hann má einnig nota til að draga fram kinnbein og ramma inn varirnar.

Rouge Pur Couture, vinsælustu satínvaralitirnir frá YSL, eru líka í línunni en þeir koma í fjórum nýjum litum sem fást eingöngu fyrir jólin.

Þeir fást því núna allt frá hátíðarrauðum út í djúpa plómuliti.

Síðast en ekki síst kemur Black Opium-ilmurinn í fallegu stjörnuskreyttu glasi sem einungis fæst fyrir jólin. Þetta er vinsælasti dömuilmur YSL og inniheldur einstaka blöndu af svörtu kaffi, vanillu og hvítum blómum.

Hér má sjá gullpennann í jólafötunum.
Hér má sjá gullpennann í jólafötunum.
Jólin kalla á aðeins dekkri varaliti. Þessi er frá YSL.
Jólin kalla á aðeins dekkri varaliti. Þessi er frá YSL.
Það er fátt jólalegra en rauður varalitur.
Það er fátt jólalegra en rauður varalitur.
Black Opium í sérstökum hátíðaumbúðum.
Black Opium í sérstökum hátíðaumbúðum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál