Victoria Beckham skilur ekki magaboli

Victoria Beckham er hætt að syngja og vinnur nú sem …
Victoria Beckham er hætt að syngja og vinnur nú sem fatahönnuður. mbl.is/AFP

Tískuhönnuðurinn Victoria Beckham var gestur Ellen DeGeneres á dögunum þar sem hún viðurkennir að hún skilur ekki tvö tískutrend. Það eru magabolir og jakkar sem hanga neðarlega á bakinu.

DeGeneres spurði Beckham hvaða trend það væru sem rugluðu hana í ríminu. „Magabolir. Ég hef tekið eftir fullt af fólki í magabolum undanfarið,“ sagði Beckham. 

„Bíddu, það er reyndar annað. Þegar fólk lætur jakkann hvíla aftan við sig á höndunum. Veistu hvað ég á við? Fólk vill líta út eins og því sé alveg sama.“

DeGeneres tók undir með Beckham og sagði að henni þætti þetta jakkatrend einnig mjög ruglandi. „Vertu bara í jakkanum eða ekki,“ sagði DeGeneres.

Frú Beckham þykir einstaklega smart kona og er iðulega klædd í fallegar dragtir sem einkenna tískulínur hennar. 

Hana Cross, fyrrverandi tengdadóttir Victoriu Beckham, klæðist magabolum reglulega.
Hana Cross, fyrrverandi tengdadóttir Victoriu Beckham, klæðist magabolum reglulega. Skjáskot/Instagram
Hailey Bieber er oft með jakkann einhverstaðar annars staðar en …
Hailey Bieber er oft með jakkann einhverstaðar annars staðar en á öxlunum. Skjáskot/Instagram



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál