Nigella dáist að ómáluðum konum

Nigella Lawson.
Nigella Lawson. AFP

Hin 59 ára gamla Nigella Lawson er þekkt fyrir að líta vel út. Leyndarmál sjónvarpskokksins er einfalt: bara nógu mikill farði. Lawson segist ekki hafa nógu mikið sjálfstraust til þess að vera óförðuð. 

„Það þarf hugrakkari og öruggari manneskju en mig til að segja: Ekki farða mig og ekki greiða á mér hárið,“ sagði Lawson nýlega í viðtali við OK! að því er fram kemur á vef Daily Mail. „Ég dáist að fólki sem er þannig. Fyrir mér er þetta brynja.“

Það kemur aðdáendum Nigellu líklega ekki á óvart en góður maskari sem lengir augnhárin er uppáhaldssnyrtivara hennar. 

Lawson er þó ekki bara þekkt fyrir að vera vel máluð og með vel blásið hár. Hún er einnig í góðu formi og borðar líklega ekki allt sem hún eldar þrátt fyrir að halda því fram að hún hafi aldrei farið í megrun. 

Nigella Lawson.
Nigella Lawson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál