Í sömu jakkafötunum á öllum verðlaunahátíðunum

Joaquin Phoenix verður í jakkafötunum frá Stellu McCartney á öllum …
Joaquin Phoenix verður í jakkafötunum frá Stellu McCartney á öllum verðlaunahátíðunum sem framundan eru. AFP

Leikarinn Joaquin Phoenix ætlar að vera í sömu jakkafötunum á öllum verðlaunahátíðunum þetta árið. Phoenix hreppti verðlaunin á Golden Globe-hátíðinni síðustu helgi fyrir hlutverk sitt í Joker. 

Hann er tilnefndur til fleiri verðlauna; í gær var hann tilnefndur til BAFTA-verðlaunanna og líklegt þykir að hann verði tilnefndur til Óskarsins á mánudaginn kemur.

Jakkafötin eru sérhönnuð frá Stellu McCartney. Phoenix ætlar að klæðast þeim á komandi verðlaunahátíðum til þess að minnka rusl. Í færslu á samfélagsmiðlum Stellu McCartney segir að hann hafi valið McCartney með framtíð jarðarinnar í huga. 

Merki McCartney er þekkt fyrir að hafa tekið græn skref á síðustu árum og ekki er að finna neina dýraafurð í vörum frá þeim. 

Phoenix sjálfur er ötull umhverfisverndarsinni og hefur verið grænkeri til fjölda ára. Hann er sagður hafa haft áhrif á þá ákvörðun að bjóða bara upp á plöntufæði á Golden Globe-verðlaunahátíðinni. Í þakkarræðu sinni á hátíðinni ræddi hann um umhverfismál og loftslagsvána.

Búið ykkur undir að sjá mikið af því sama frá …
Búið ykkur undir að sjá mikið af því sama frá Phoenix. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál