Faldi ræturnar með demöntum

Charlize Theron með demanta í rótinni.
Charlize Theron með demanta í rótinni. AFP

Stutthærða leikkonan Charlize Theron vakti athygli fyrir óvenjulega hárgreiðslu á SAG-verðlaunahátíðinni í Los Angeles. Theron hafði ekki tíma til að lita hárið á sér fyrir hátíðina svo hárgreiðslumaðurinn hennar setti demanta í hárið á henni. 

„Af hverju hendum við ekki Tiffany-hálsmeni eða armbandi í það?“ Sagði Theron að hárgreiðslumaðurinn sinn hafi sagt við sig að því fram kemur á vef People. Theron er með ljósan drengjakoll þessa dagana og því ekki auðvelt að fela dökkar ræturnar með flókinni hárgreiðslu. 

Demantarnir pössuðu sérstaklega vel við klæðnað Theron. Leikkonan var í glitrandi magabol frá Givanchy og svörtu pilsi við. 

Charlize Theron hafði ekki tíma til að lita hárið.
Charlize Theron hafði ekki tíma til að lita hárið. AFP
Charlize Theron.
Charlize Theron. AFP

Hárgreiðslumaður Theron, Adir Abergel, birti myndskeið á Instagram af hárgreiðslunni. Sést þar hvernig demantafestin er fest við hárið á henni sem er greitt í píku. Að aftan er hárið svo greitt beint niður. 




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál