Tónlistarkonan Lana Del Rey mætti í silfurkjól á Grammy-verðlaunahátíðina á sunnudaginn síðasta. Það vakti athygli blaðamanns á hátíðinni að kærasti hennar, Sean Larkin, var í stíl við kjólinn.
Kjóll Del Rey hefur vakið athygli eftir verðlaunahátíðina en hún segist hafa keypt hann í verslunarmiðstöð aðeins stuttu fyrir hátíðina. „Ég var komin með annan kjól en svo voru ég og kærastinn minn í verslunarmiðstöðinni að kaupa belti handa honum og ég sá þennan og elskaði hann. Þannig að ég valdi hann á síðustu stundu en ég elska hann,“ sagði Del Rey.
Kjóllinn er frá Aidan Mattox og seldur í Saks Fifth Avenue. Hann kostar 595 Bandaríkjadali eða um 75 þúsund íslenskar krónur.