Klæðist jakkafötum af eiginmanninum

Hrefna Dan.
Hrefna Dan. Ljósmynd/Aðsend

Fasteignasalinn og tískudrottningin Hrefna Dan er ekki feimin við að teygja sig yfir í fataskáp eiginmanns síns. Í vikunni gerði hún nákvæmlega það og skellti sér í jakkaföt og bindi af honum. Hrefna er enginn nýgræðingur í jakkafötum og hefur oft skartað einstaklega fallegum dröktum.

Hrefna birti mynd af sér á Instagram-reikningi sínum í jakkafötunum í vikunni og lætur hún þau klárlega koma jafn vel út á konu, þrátt fyrir að vera sniðin fyrir karlmenn. Í færslu sinni skrifar Hrefna að dóttir hennar hafi verið hissa á að hún væri einnig með bindi. 

Dóttir mín hló þegar hún sá mig og spurði hvort ég væri nokkuð orðin karlmaður af því ég væri í jakkafötum og með bindi, en eins og ég sagði henni eru það ekki bara karlmenn sem geta notað hálsbindi, þar sem það er ekki til neitt sem heitir föt fyrir konur eða föt fyrir karla, konur mega nota hálsbindi og karlar mega klæðast kjólum. Við eigum jú bara að klæðast þeim fötum sem okkur sjálfum líður vel í,“ skrifar Hrefna. 

Hrefna Dan í jakkafötum eiginmannsins.
Hrefna Dan í jakkafötum eiginmannsins. Skjáskot/Instagram
Hrefna klæðist oft dröktum og jakkafötum.
Hrefna klæðist oft dröktum og jakkafötum. Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál