Gerði bestu kaupin á Ísafirði

Bláa jakkann frá Libertine keypti Berglind í Húrra.
Bláa jakkann frá Libertine keypti Berglind í Húrra. mbl.is/Árni Sæberg

Berglind Halla Elíasdóttir er með töffaralegan og klassískan fatastíl. Berglind Halla sækir innblástur að fatavali sínu víða, meðal annars í leikhúsið en hún útskrifaðist sem leikkona frá Listháskóla Íslands síðastliðið vor. 

„Ég fór með hlutverk í söngleiknum We Will Rock You í Háskólabíói í haust sem var virkilega skemmtilegt og lærdómsríkt og svo hef ég verið að talsetja. Næst á dagskrá er verkefni með sviðslistahópnum Sómi þjóðar. Ég er gríðarlega spennt fyrir því að byrja að vinna með þessum hópi listamanna,“ segir Berglind um fyrstu verkefnin eftir útskrift. 

Berglind segir alltaf gott að eiga góðar gallabuxur.
Berglind segir alltaf gott að eiga góðar gallabuxur. mbl.is/Árni Sæberg

Hvernig er fatastíllinn þinn?

„Sambland af klassík, töffaralátum og þægindum. Elska víð og síð föt, eitthvað sem ég er frjáls í og klæði mig svolítið eftir skapi eða tilfinningu, ég reyni að vera samkvæm sjálfri mér hverju sinni. Mér finnst mjög gaman að blanda saman einhverju sem er ekki „týpísk“ samsetning og kalla fram ólíka karaktera í sjálfri mér með klæðavali. Svo redda ég mér gjarnan með því að henda hárinu upp í „messy-bun”.“

Veskið var keypt í búð sem seldi notaðar vörur. Mágkona …
Veskið var keypt í búð sem seldi notaðar vörur. Mágkona Berglindar notaði veskið áður en hún gaf henni það árið 2016. mbl.is/Árni Sæberg

Hvaða tísku­tíma­bil er í mestu upp­á­haldi hjá þér?

„Ég fíla væbið sem var í gangi á tíunda áratugnum og svo er ég mjög hrifin af því sem er í gangi í dag. Það er einhvern veginn allt í gangi á sama tíma núna.“

Eyrnalokkar eru í miklu uppáhaldi hjá Berglindi. Þessir eru úr …
Eyrnalokkar eru í miklu uppáhaldi hjá Berglindi. Þessir eru úr Maiu. mbl.is/Árni Sæberg

Upp­á­haldsversl­un­in á Íslandi? 

„Ég get ekki gert upp á milli. Uppáhaldsbúðirnar eru GK Reykjavík, Monki, Húrra Reykjavík, Geysir og Yeoman.“

Berglind í kjól frá Hildi Yeoman.
Berglind í kjól frá Hildi Yeoman. mbl.is/Árni Sæberg

En í út­lönd­um?

„Í hreinskilni sagt þá bara veit ég það ekki. Ég ramba inn í eitthvað sem mér líst vel á, ef ég yfir höfuð gef mér einhvern tíma til að versla. Leyfi staðnum sem ég er á að leiða mig áfram hverju sinni.“

Kúrekastígvél með dýramunstri fra GS skóm.
Kúrekastígvél með dýramunstri fra GS skóm. mbl.is/Árni Sæberg

Versl­ar þú mikið á net­inu?

„Nei, ég bara versla aldrei á netinu. Ég verð að geta mátað. Ef ég veit ekki hvort flíkin fari mér vel eða mér líði yfir höfuð vel í henni get ég ekki keypt hana. Notagildi skiptir mig miklu máli.“

Hvað finnst þér setja punktinn yfir-ið þegar þú gerir þig til?

„Eyrnalokkar eru uppáhaldsskartið mitt og mér finnst þeir gjarnan setja punktinn yfir i-ið hjá mér. Ég á mikið úrval af mismunandi eyrnalokkum, í öllum stærðum og gerðum og hafa þeir allir sér karakter. Mér finnst mikill munur á því að vera með stóra hringi, síða lokka eða látlausa perlulokka. Svo kemur yfirhöfnin og skóval sterkt inn. Hælar geta gert hversdagslúkkið mjög fínt, strigaskór geta gert fínustu kjólana mjög hversdagslega og létta og yfirhöfnin þjónar í raun sama tilgangi og skórnir að mínu mati.“

Svört mjúk stígvél úr Kaupfélaginu.
Svört mjúk stígvél úr Kaupfélaginu. mbl.is/Árni Sæberg

Bestu kaup sem þú hef­ur gert?

„Ég hugsa að bestu kaup sem ég hef gert sé svartur víður kjóll/bolur sem ég keypti í Kaupmanninum á Ísafirði fyrir nokkrum árum. Ég hef notað hann við nánast allt og við alls kyns tilefni. Uppáhaldskaupin eru hins vegar útskriftarkjóllinn minn frá Filippa K, Chie Mihara-skór úr Geysi, The Royal Dress frá Yeoman og Libertine-frakkinn minn úr Húrra Reykjavík. Fjórir hlutir sem ég sparaði fyrir og hlakkaði til að eignast. Svona svolítið ást við fyrstu sýn.“

Berglind keypti svarta kjólinn á Ísafirði.
Berglind keypti svarta kjólinn á Ísafirði. mbl.is/Árni Sæberg

Stærsta tísku­slysið þitt?

„Ég veit það ekki. Örugglega bara allir virkir dagar á meðan ég var í leiklistarnáminu.“

Áttu þér tískufyrirmynd? 

„Ég hef verið svo heppin með fyrirmyndir, á öllum vígstöðvum, úr mínu nánasta umhverfi. Hvað tísku varðar myndi ég segja að mamma mín og Gunna „frænka“, fyrrverandi píanókennari minn, hafi verið ákveðnar tískufyrirmyndir. Þær eru báðar mjög elegant og klassískar. Gunna er mjög listræn og mikill töffari og mamma með ótrúlegt auga fyrir smáatriðum og er með stílhreinan smekk. Ég fer varla að heiman án þess að taka eins og eina gamla flík af mömmu eða skópar sem hún hefur ekki notað í fleiri ár en hún hefur geymt allt það fallegasta frá því hún var svona tvítug. Síðast fékk ég græna pinnahæla og blómasíðkjól.“

Berglind útskrifaðist sem leikkona í kjól frá Filippa K og …
Berglind útskrifaðist sem leikkona í kjól frá Filippa K og í skóm frá Chie Mihara. Ljósmynd/aðsend


Hvað er nauðsyn­legt að eiga í fata­skápn­um sín­um um þessar mundir?

„Góðar gallabuxur er alltaf gott að eiga en núna er mikilvægt að eiga hlýja yfirhöfn og kuldaskó. Svo er ég sökker fyrir fallegum prjónapeysum og þar kemur mamma aftur sterk inn með prjónana á lofti.“

Hvað er á óskalist­an­um?

„Svartur langerma samfestingur. Svo var ég að fá þrjá kjóla af ömmu minni, alveg ofboðslega fallega, en þeir eru allt of stórir. Óskin og stefnan er að koma þeim í hendur klæðskera og endursníða þá.“  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál