„Var hálfgert indíánabarn í æsku“

Gígja Einarsdóttir er alin upp í náttúrunni og elskar íslenska …
Gígja Einarsdóttir er alin upp í náttúrunni og elskar íslenska náttúru og hestaferðir. mbl.is

Ljósmyndarinn Gígja Einarsdóttir er bóndadóttir af Mýrunum. Hún er alin upp eins og indíánastelpa og segir það mikil forréttindi að geta týnt sér í náttúrunni án þess að fólk væri að spá í hvar hún væri niðurkomin.

Gígja er að gera það gott þessa dagana með ljósmyndirnar sínar sem birst hafa m.a. í Urban Outfitters, H&M, Old Navy, Target og fleiri stöðum. Gígja hefur víðtæka menntun, bæði í markþjálfun, hestafræðum frá Háskólanum á Hólum og í ljósmyndun. Hún bjó um árabil í Bandaríkjunum þar sem hún vann við markaðssetningu, tamningar og þjálfun á íslenska hestinum.

Verkin hennar Gígju njóta vinsælda víða.
Verkin hennar Gígju njóta vinsælda víða. mbl.is

„Ég er bóndadóttir af Mýrunum og var hálfgerður indíanakrakki í bernsku. Alin upp á hestbaki og meira og minna í sveitinni. Tenging mín við náttúruna og sveitina er því mjög sterk. Ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir að vera úti í náttúrunni og í kringum dýr. Sem barn þá fór ég alltaf í langa göngutúra í sveitinni og oftar en ekki út í stóð, þar sem ég gleymdi mér alveg. Það er eitthvað svo yndislegt við það að bara sitja og fá vera með þessum fallegu skepnum eða kúra hjá þeim.“

Allir vissu að hún kæmi aftur heim

Gígja segir mikil forréttindi að alast upp á þennan hátt. Þá sér í lagi þar sem enginn var að kippa sér upp við það þótt hún væri horfin.

„Allir á heimilinu vissu hvar ég var og að ég myndi að lokum koma heim. Mér skilst að ég hafi verið mjög svo einrænt og utangátta barn, enda til nokkrar skemmtilegar sögur af mér úr sveitinni. Svo fór ég að taka með mér myndavél í þessar gönguferðir þegar ég varð unglingur og fann mig algjörlega. Ég held að í rauninni sé þetta mín leið til að hreinsa hugann, að vera með hestunum, úti í náttúrunni og í núinu.“

Gígja segir sjónarhorn knapans einstakt.

„Það er sem dæmi algjör heppni að ná góðri ljósmynd á mikilli ferð, en svo skemmtilegt þegar það tekst.

íslenski hesturinn með augum Gígju.
íslenski hesturinn með augum Gígju. mbl.is/Gígja Einarsdóttir

Svo er líka mjög spennandi að mynda í sérstökum aðstæðum eins og brjáluðu veðri, eins að sameina hesta og fallega náttúru á mynd. Ég fékk t.d. að fara ríðandi inn í Jökulgil í Landmannalaugum í haust í fylgd með leitarmönnum. Ég held að ég hafi aldrei á ævi minni komið á svona fallegt svæði.“

Margt hægt að læra af hestinum

Þegar kemur að hestunum og innsæi þeirra segir Gígja að til séu margar sögur af hestum sem hafa bjargað eigendum sínum frá því að verða úti í illviðrum með því að rata á óskiljanlegan hátt heim.

„Einnig eiga þeir það til að standa í höm (stilla sér upp í röð) fyrir óveður þó að enn sé logn úti. Þá veit maður að það er von á smá hvessingi. Ég hef reynt þetta sjálf með ratvísina þar sem ég hef villst í svartaþoku, þá létum við hestana gjörsamlega ráða ferðinni þar sem við fórum fram hjá keldum, yfir á og leirur og enduðum á bæjarhlaðinu þrátt fyrir að hafa villst af leið.“

Gígja tekur fallegar ljósmyndir með augum indíánastelpunnar.
Gígja tekur fallegar ljósmyndir með augum indíánastelpunnar. mbl.is/Gigja Einarsdóttir

Gígja leggur áherslu á að vera eins sönn og hún getur í lífinu. Hún reynir að setja athyglina á það sem veitir henni hamingju hverju sinni.

„Án allra hindrana væri ég að ferðast um heiminn og skapa sturlað skemmtilegar minningar með börnunum mínum og láta eitthvað gott af mér leiða á sama tíma. Fjallamennska, skíði og hestaferðir væru í hámæli. Reyndar hefur mig alltaf langað til að læra chi gong, ég myndi pottþétt vera í útlegð einhvers staðar í svoleiðis athvarfi með einhverju svaka gúrúi. Jógaferð til Balí er líka ofarlega á lista í mínu lífi.“

Gígja er mikil fjölskyldukona og er umkringd fjölskyldu og vinum daglega. Kærleikur, tryggð, ást og fjölskyldan eru einkunnarorð hennar og til að halda í hamingjuna reynir hún að velta sér ekki upp úr hlutum sem skipta engu máli í stóra samhenginu.

Íslenski hesturinn nýtur vinsælda víða.
Íslenski hesturinn nýtur vinsælda víða. mbl.is/Gígja Einarsdóttir
Verk eftir Gígju Einarsdóttur.
Verk eftir Gígju Einarsdóttur. mbl.is/Gígja Einarsdóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál