Svona heldur Moore sér unglegri kortér í sextugt

Julianne Moore.
Julianne Moore. AFP

Leikkonan Julianne Moore verður sextug á árinu. Hún lítur þó ekki út fyrir að vera deginum eldri en 39 ára. Eftir mörg ár í sviðsljósinu veit Óskarsverðlaunaleikkonan hvað virkar fyrir hana þegar kemur að því að líta vel að því er fram kemur á vef Women's Health. 

Sólarvörn

Moore eins og svo margar Hollywood-stjörnur fer ekki út úr húsi án þess að vera með sólarvörn. Segist hún hafa notað sólarvörn á hverjum degi síðan hún var 23 ára. Hún heldur sig einnig frá sólinni. Hún kýs skugga fram yfir sól. 

Passar mataræðið

Moore forðast að borða mat sem inniheldur mikið magn af natríum þegar hún þarf að koma fram opinberlega. Segist hún til að mynda ekki fá sér sushi ef hún þarf að mæta á rauða dregilinn. Segir hún að andlit sitt verði bólgið. 

Þrífur andlitið á kvöldin

Leikkonan segist alltaf þrífa andlitið á kvöldin auk þess sem hún notar krem.

Hún veit hvað virkar

Moore veit hvað virkar á húð sína. Hún segist til dæmis passa sig að nota ekki ákveðin efni sem hún veit að er of sterk fyrir sig. 

Gerir vel við sig

Moore fer reglulega í andlitsmeðferðir, slakar og gerir æfingar sem eru góðar fyrir hana líkamlega og andlega. 

Julianne Moore.
Julianne Moore. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál