Undarleg aðferð hárgreiðslukonu fer á flug

Regnhíf var notuð til þess að verjast smiti.
Regnhíf var notuð til þess að verjast smiti. Samsett mynd

Hárgreiðslustofur á Íslandi neyddust til að skella í lás á mánudaginn. Ekki er víst hvort að undarleg tækni sem hárgreiðslukona í Hollandi notaði á dögunum hefði komið í veg fyrir að loka þyrfti hárgreiðslustofum á Íslandi. 

Myndband af hárgreiðslukonunni fór á flug á netinu og hefur verið deilt fjölda mörgum sinnum á Facebook. Ástæðan er sú að hárgreiðslukonan notar heimatilbúinn varnarskjöld til þess að verjast kórónuveirunni. Varnarskjöldurinn er gerður úr regnhlíf en búið er að klippa göt fyrir hendur og augu svo að hárgreiðslukonan geti athafnað sig.

Ekki fylgir sögunni hvernig hárgreiðslutíminn gekk. 

Samsett mynd



 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál