Yngdu þig upp á meðan þú sefur

Er húðin á þér í steik eftir alla inniveruna og viltu nota tímann til að fríska hana við? Ef svo er þá er komin splunkuný lína frá YSL, Pure Shots, sem hugsar út í þarfir nútímafólks. 

Teymi sérfræðinga var dregið á flot til þess að búa til þessa línu en í hópnum eru líffræðingar, umhverfisfræðingar, húðlæknar og grasafræðingar svo einhverjir séu nefndir. Þessir sérfræðingar voru fengnir til að rannsaka áhrif nútímalífsstíls og umhverfisáhrifa á húðina og byggist nýja línan á þessari vinnu. 

En hvað er það í lífi nútímafólks sem hefur svona mikil áhrif á húðina? Jú, það er umhverfið, of mikil vinna, óreglulegur vinnutími sem leiðir til meiri streitu og of lítill svefn svo eitthvað sé nefnt. Þessi atriði auka líkur á ótímabærri öldrun húðarinnar.  

Í línunni er dagkrem, næturserum, dagserum og fleira sem yngja …
Í línunni er dagkrem, næturserum, dagserum og fleira sem yngja húðina upp.

Orkuskot um nótt 

Álagið og kröfurnar sem fylgja nútímalífsstíl hafa áhrif á starfsemi húðarinnar. Það veldur því að hún hættir að starfa eðlilega og frumuendurnýjun minnkar.  

Stjörnuvara Pure Shots-línunnar, Night Reboot-serumið, er sérstaklega þróað með þetta vandamál í huga og byggist á einstakri samvinnu náttúru og vísinda. Gróf eða ójöfn húð verður mýkri, sléttari og áferðin fallegri. Night Reboot-serumið fjarlægir dauðar húðfrumur, örvar frumuendurnýjun og verndar nýjar frumur. Serumið inniheldur 3,4% glycolicsýru sem slípar yfirborð húðar og hefur endurnýjandi eiginleika ásamt náttúrulegu innihaldsefni, Moonlight kaktus Flower, sem kemst dýpra niður í húðlögin og hefur viðgerðar- og verndandi eiginleika. Það má því segja að húðin dragi strax úr þreytumerkjum.

Náttúruleg innihaldsefni eru fengin úr YSL Beauty Ourika garden í Marokkó þar sem þau eru rannsökuð og valin út frá sérstökum eiginleikum. Kalt og hægt vinnsluferli varðveitir innhaldsefnin og leyðir til minni notkunar á orku og vatni sem skilar hinu fullkomna jafnvægi.

Umbúðirnar á Pure Shots línunni frá YSL eru fallegar.
Umbúðirnar á Pure Shots línunni frá YSL eru fallegar.

Nóttin gegnir lykilhlutverki 

Máttur næturinnar var innblástur þessarar nýju línu þar sem nóttin gegnir lykilhlutverki í lífinu. Herra Saint Laurent var sannkallaður nátthrafn og næturlífið lék stórt hlutverk í hans lífi. Það er tíminn þar sem hægt er að fá næði frá amstri dagsins og það er einnig tíminn þar sem sjaldgæfur kaktus blómstrar einu sinni á ári yfir eina nótt. Lífsvökvi þessa blóms er notaður í formúlu þessa einstaka næturserums.

Pure Shots-línan er ekki eingöngu tækifæri fyrir konur að lifa þeim lífsstíl sem þær kjósa án þess að það komi niður á húðinni heldur hefur Ourika-garður YSL Beauty skapað tækifæri fyrir samfélag kvenna sem sér nú um og ræktar landsvæði sem ekki var nýtt áður. Þannig hafa skapast störf og atvinna fyrir enn fleiri konur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál